Hagkvæmt raforkukerfi og framtíð vindorku
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, er meðal þeirra sem flytja erindi á fundinum. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Það hvernig byggja á upp hagkvæmt raforkukerfi sem eykur afhendingaröryggi og áfallaþol er meðal þeirra umræðuefna sem fjallað verður um á haustfundi Landsnet nú klukkan 14 í dag. Þá verður einnig fjallað um umframeftirspurn eftir raforku hér á landi og hlutverk vindorku í raforkukerfi framtíðar.
Í fundarboði segir að fjalla eigi um hvernig fyrrnefnd uppbygging eigi að leggja grunn að verðmætasköpun og atvinnuuppbyggingu.
Á fundinum koma eftirfarandi fram:
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Haraldur Flosi Tryggvason Klein, stjórnarformaður Landsnets, flytja ávörp. Ragna Árnadóttir forstjóri, Vala Valþórsdóttir, Magni Þ. Pálsson og Ríkarður Ríkarðsson flytja erindi.
Í pallborði verða Jóhann Páll, Ragna, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Vogum.
Fundurinn stendur frá 14:30 til 16:00 og hægt er að fylgjast með beinni útsendingu hér að neðan:
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗