Guðmundur Ingi fær að heyra skelfilegar sögur: „Hvað er að?“
Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 13:53
Guðmundur Ingi Kristinsson. Mynd: DV/KSJ
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður, gagnrýnir harðlega hvernig almannatryggingakerfið kemur fram við alvarlega veikt fólk. Hann segir óeðlilegt að fólk sem liggur fárveikt á sjúkrahúsi þurfi sjálft að afla gagna til að koma í veg fyrir skerðingu á greiðslum.
Guðmundur Ingi gerði þetta að umtalsefni undir dagskrárliðnum störf þingsins á Alþingi í gær. Hann segist hafa fengið að heyra skelfilegar sögur af samskiptum fólks við almannatryggingakerfið.
„Að ræða um almannatryggingakerfið virðist vera eins og að opna pandórubox. Fólk streymir að og segir mér sögur, skelfilegar sögur,“ sagði hann.
Guðmundur Ingi nefndi sem dæmi fólk sem þarf að dvelja á sjúkrahúsi í hálft ár.
„Hver getur hugsað sér að vera á sjúkrahúsi í hálft ár? Er það ekki skelfilegt? En þarf þá að senda þessu fólki bréf og hóta að refsa því fjárhagslega? Hvað er að?“
Hann benti á að hægt væri að fá undanþágu en til þess þyrftu sjúklingar sjálfir að afla gagna.
„Þú ert fárveikur inni á sjúkrahúsi, liggur þar kannski út af krabbameini eða einhverju. Af hverju í ósköpunum er þetta ekki sjálfvirkt? Hvers vegna er ekki eitthvað sem grípur þig?“
Guðmundur Ingi vék einnig að stöðu fólks með geðræna sjúkdóma sem að hans sögn lendir á vegg í kerfinu. Hann segist hafa þurft að vísa fólki til Öryrkjabandalagsins og Geðhjálpar til að það fái aðstoð.
„Það á að vera þarna úti einstaklingur sem grípur þetta fólk og vísar því rétta leið,“ sagði hann og lagði áherslu á að fólki yrði hjálpað við að afla nauðsynlegra gagna í stað þess að vera vísað frá vegna þess að eitthvað vantaði upp á umsóknir þess.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗