Liverpool vill freista þess að fá hann ódýrt - United fylgist grannt með
Liverpool ku hafa mikinn áhuga á Daniel Svensson, vinstri bakverði Dortmund.
Liverpool vill fá leikmann til að veita Milos Kerkez samkeppni um stöðu vinstri bakvarðar og hyggst freista þess að fá Svensson í janúar.
Svíinn, sem er 24 ára gamall, hefur einnig verið orðaður við Arsenal, Manchester United og AC Milan. United sendi útsendara til að fylgjast með honum í leik Dortmund gegn Real Betis í Meistaradeildinni fyrr í þessum mánuði.
Dortmund metur Svensson á um 40 milljónir punda en Liverpool er talið ætla að láta reyna á 25 milljóna punda tilboð í leikmanninn.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗