Reynir kallar eftir stýringu: „Við þurfum kannski ekki mörg hundruð mannfræðinga á Íslandi“
„Við upplifum á einhverjum tíma að við værum svo rík, þjóðin í heild sinni, að við urðum svona eins og rík fjölskylda sem að foreldrarnir eru bara í sínu og börnin mega bara gera það sem þau vilja. Til dæmis með skólakerfið, við beindum öllum í háskóla og það þurfti að flytja inn iðnaðarmenn jafnvel þó það væri atvinnuleysi,“ segir Reynir Grétarsson fjárfestir og stofnandi Creditinfo, í viðtali í hlaðvarpinu Ein pæling, þar kallar hann eftir betri stýringu á menntun í samfélaginu.
„Við viljum ekki vinna í fiski og iðnaðarmennirnir í auknum mæli, þeir eru bara pólskir núna pípararnir og smiðirnir, svolítið mikið. Topp fólk líka og topp íslenskt fólk líka sem er í þessu,“ segir hann.
„Náttúrulega ef skilaboðin eru; farðu bara í félagsvísindin, þú getur fengið lán fyrir fimm háskólagráðum. Við höfum gengið of langt, sennilega. að einhver sé með tugi milljóna í námslánum í einhverju námi sem er kannski að fara að búa til takmörkuð verðmæti. Við náttúrulega þurfum alls konar fólk, við þurfum félagsfræðinga og mannfræðinga, en við þurfum kannski ekki mörg hundruð mannfræðinga á Íslandi. Við þurfum að stýra þessu eitthvað betur, held ég.“
Í viðtalinu vitnaði Reynir einnig í orð Þórarins G. Péturssonar varaseðlabankastjóra sem sagði nýverið að fleiri væru að hverfa af vinnumarkaði og að fara á bætur.
„Þetta er stórkostlega alvarlegt,“ segir Reynir, hér á landi hafi ríkt samfélagssáttmáli um að allir eigi að leggja sig fram en samfélagið grípi utan um þá sem eru veikir eða lenda í örorku.
„En kerfi sem einhvern veginn gengur út á að gera alla jafna og að þú getur svona næstum því valið hvort þú ætlir að vera inni á vellinum, hvort þú ætlir að leggja þig fram fyrir samfélagið, það er bara rosalega hættulegt, svona liggur við heimtufrekja,“ segir hann.
„Það er óhjákvæmilegt ef að öryrkjum fjölgar stöðugt að einhvers staðar velti kerfið um koll. Það fjölgar alltaf þeim sem þurfa á framfærslu heildarinnar. Þetta er einhvern veginn þannig að þeir sem eru að vinna, þeir eru að vinna hálfa ævina fyrir hina. Bara sá hluti af þeirra vinnu er tekinn fyrir heildina, skattlagningin á vinnunni. Það náttúrulega eru mörk hvað það getur gengið langt.“
Reynir er ekki bjartsýnn á þróun samfélagsins ef hún heldur áfram á sömu braut þar sem útgerðarfélögin græða, landið fullt af ferðamönnum en ríkissjóður rekinn með halla.
„Opinberum starfsmönnum bara fjölgar, velferðarkerfið blæs út og besta fólkið dettur út. Þetta er ekki sjálfbært ef við horfum til 30 ára.“
Ríkisstjórnin stefnir nú að ná tökum á ríkissjóði og ætlar að reka það án halla á næsta ári, Reynir er ekki bjartsýnn:
„Það þarf eitthvað miklu, miklu meira held ég. En þú veist, þetta er lýðræði.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗