Opnunartíminn styttur vegna jólagleði
Opnunartími sundlauga í Reykjavík verður styttur um helgina vegna jólagleði starfsmanna.
Reykjavíkurborg greinir frá þessu í tilkynningu.
Á föstudag lokar Árbæjarlaug kl. 14:45. Laugin opnar aftur laugardaginn 28. nóvember kl. 10:00. Dalslaug og Sundhöll Reykjavíkur loka kl. 15:30. Laugarnar opna aftur laugardaginn 28. nóvember kl. 10:00. Klébergslaug lokar kl 16.00.
Á laugardaginn 28. nóvember lokar Vesturbæjarlaug kl.16:00. Laugin opnar aftur sunnudaginn 29. nóvember kl. 10:00. Sánur opna kl. 11:00 á sunnudeginum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗