Óljóst hver vissi hvað um skemmdirnar

Eva Bryndís Helgadóttir skiptastjóri segir myndina skýrast smám saman en gagnaöflunin taki tíma. Hún hefur enn ekki skriflegt tjónamat á hótelturninum undir höndum. Samsett mynd: mbl.is/Eggert/Karítas

Eva Bryndís Helgadóttir, skiptastjóri þrotabúa sex félaga sem tengjast uppbyggingu hótelturnsins við Skúlagötu 26, safnar gögnum um skemmdirnar á turninum, meðal annars hvenær þær komu fyrst í ljós. Hún segir myndina skýrast smám saman en kveðst enn ekki hafa heildarmynd af því „hvað hver vissi á hvaða tímapunkti og hvað mikið“.

Samhliða gagnaöfluninni er unnið að því að takmarka frekara tjón og kanna framhald verkefnisins. Vinnan við framhaldið er enn á byrjunarstigi og engin tilboð hafa borist í turninn, að sögn Evu. Hún hefur heldur ekki skriflegt tjónamat undir höndum.

Getur ekki staðfest tjónatölurnar

Viðskiptablaðið greindi frá því 17. nóvember, með vísan til heimildarmanna, að mygla hefði fundist í allt að 190 af 214 herbergjum turnsins. Heimildarmenn blaðsins töldu að tjónið gæti numið 10–14 milljörðum króna þar sem fjarlægja gæti þurft herbergjaeiningarnar.

Arion banki sagði í kjölfarið, í skriflegu svari við fyrirspurn Morgunblaðsins, að möguleg fjárhagsleg áhrif verkefnisins á bankann væru „ekki í líkingu við“ þær tölur sem fram komu í frétt Viðskiptablaðsins um tjónið.

Spurð út í tjónatölurnar segir Eva að hún hafi ekki slíkt mat undir höndum og geti ekki staðfest þær á þessu stigi. Hún segir vinnuna taka tíma og bendir á að um sautján hæða hús sé að ræða.

Vinna að því að verja húsið

Samkvæmt heimildum mbl.is urðu vatnsskemmdir á fjölda herbergjaeininga sem fluttar voru inn frá Póllandi.

Eva segir áfram unnið að því að takmarka tjón og verja húsið gegn frekari skemmdum. Í þeirri vinnu felist meðal annars að finna og stöðva leka, ef þeir eru til staðar. Fólk á hennar vegum fylgist með raka og ástandi hússins.

Framhaldið enn á byrjunarstigi

Eva segir verið að skoða aðkomu aðila sem hafi þekkingu og fjárhagslega burði til að taka verkefnið yfir. Hún hafði áður sagst hallast að því að selja turninn eins og hann stendur.

Í svari Arion banka 18. nóvember kom fram að endanlegur kostnaður við að ljúka framkvæmdum lægi ekki fyrir. Unnið væri að því að finna leið til að skipta út skemmdu efni, finna nýjan framkvæmdaaðila og tryggja áframhaldandi samstarf við rekstraraðila hótelsins.

Bankinn taldi þá ekki tilefni til sérstakrar markaðstilkynningar og sagðist myndu bregðast við ef það mat breyttist.

Framkvæmdir við turninn stöðvuðust 2. nóvember og verktakar voru sendir heim. Viku síðar voru bú félaganna sex tekin til gjaldþrotaskipta. Þar á meðal var S26 Hotel ehf., eigandi turnsins.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab