Heitasti framherji Englands daðrar við United
Evanilson, brasilíski framherjinn hjá enska knattspyrnufélaginu Bournemouth, lýsti aðdáun sinni á Manchester United og sagði að það að skora á Old Trafford hefði verið draumur frá barnæsku að rætast.
„Hér á Englandi er United það lið sem mér líkar best við af stóru félögunum,“ sagði hann við Globo Esporte.
„Þegar Cristiano Ronaldo lék með United horfði ég á ótal myndbönd með hápunktum frá honum.“
Evanilson skoraði í 3:0-sigri Bournemouth á United í október eftir að hafa leikið á markvörðinn Senne Lammens og komið boltanum í netið úr mjög þröngu færi.
„Án nokkurs vafa var þetta fallegasta mark ferils míns,“ sagði hann. „Það var draumur að spila á þessum leikvangi og að skora gerði það enn skemmtilegra.“
Hann hefur skorað átta mörk í 15 leikjum á tímabilinu og hefur skorað í sex leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni. Samningur hans við Bournemouth gildir til ársins 2029.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗