Vill að ESA fjalli um 4 milljarða skuldaafléttingu RÚV

Félagið telur að fyrirhugaðar aðgerðir stjórnvalda í málefnum fjölmiðla muni styrkja fjárhagsstöðu Ríkisútvarpsins verulega og veikja enn frekar samkeppnisstöðu einkarekinna fjölmiðla. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sýn hf. vill að ríkissjóður taki ekki yfir tæplega fjögurra milljarða króna skuld Ríkisútvarpsins vegna eldri lífeyrisskuldbindinga fyrr en skorið hefur verið úr um hvort ráðstöfunin samræmist reglum EES-samningsins um ríkisaðstoð og nauðsynlegri málsmeðferð gagnvart Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) er lokið.

Félagið telur að fyrirhugaðar aðgerðir stjórnvalda í málefnum fjölmiðla muni styrkja fjárhagsstöðu Ríkisútvarpsins verulega og veikja enn frekar samkeppnisstöðu einkarekinna fjölmiðla.

Þetta kemur fram í umsögnum Sýnar til fjárlaganefndar og allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis sem birtar voru á vef þingsins í gær.

Sýn tekur undir markmið stjórnvalda um að efla innlenda fjölmiðlun og fagnar auknum fjárstuðningi við einkarekna fjölmiðla. Sá stuðningur geti hins vegar ekki komið í stað aðgerða til að jafna samkeppnisskilyrði á auglýsingamarkaði.

Verði ekki látið duga að vísa til eldra fyrirkomulags

Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er óskað eftir heimild til að ríkissjóður taki yfir skuldabréf Ríkisútvarpsins vegna uppgjörs lífeyrisskuldbindinga í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Áætluð staða lánsins í lok október nam 3.950 milljónum króna.

Sýn telur að aflétting svo umfangsmikillar skuldar, samhliða breytingum á fjármögnun Ríkisútvarpsins, kalli á sérstakt mat samkvæmt ákvæðum EES-samningsins um ríkisaðstoð.

Í því sambandi vísar félagið til dóms undirréttar Evrópusambandsins frá 21. maí í fyrra vegna breytinga á fjármögnun litháíska ríkisútvarpsins. Þar var ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins ógilt vegna ófullnægjandi rannsóknar á því hvort breytingarnar fælu í sér nýja ríkisaðstoð.

Sýn tekur fram að dómurinn feli ekki í sér efnislega niðurstöðu um íslenska fyrirkomulagið. Hann undirstriki hins vegar nauðsyn þess að lagaleg staða skuldaafléttingarinnar verði skýrð áður en til hennar kemur.

Samanlagður árlegur ávinningur Ríkisútvarpsins af þessum ráðstöfunum nemur því að mati Sýnar um 615 milljónum króna í bættu sjóðstreymi. mbl.is/G.Rúnar

Metur ávinninginn á 615 milljónir á ári

Sýn telur að meta verði saman fjárhagsleg áhrif fjárlagafrumvarpsins og frumvarps menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið.

Í fjárlagafrumvarpinu er annars vegar gert ráð fyrir 330 milljóna króna hækkun fjárheimildar til samræmis við tekjuáætlun útvarpsgjalds og hins vegar heimild til yfirtöku lífeyrisskuldabréfsins, en árleg greiðslubyrði þess er áætluð 285 milljónir króna að meðtöldum verðbótum.

Samanlagður árlegur ávinningur Ríkisútvarpsins af þessum ráðstöfunum nemur því að mati Sýnar um 615 milljónum króna í bættu sjóðstreymi.

Á móti kemur fyrirhuguð skerðing á tekjum Ríkisútvarpsins af útvarpsgjaldi sem nemur 10% af verðlagsleiðréttu meðaltali auglýsingatekna þess síðustu fjögur reikningsár. Sýn metur þá fjárhæð á 263 til 277 milljónir króna á ári.

Hagnaður hefði orðið 341 milljón

Í umsögn Sýnar er jafnframt vísað til útreikninga í greinargerð frumvarpsins um Ríkisútvarpið á því hvaða áhrif skuldaafléttingin hefði haft á fjárhag félagsins í fyrra.

Samkvæmt þeim hefði hagnaður samstæðu Ríkisútvarpsins numið 341 milljón króna í stað 14,4 milljóna króna. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar hefði þá verið 58,2% í stað 16,3%.

Sýn telur þessar tölur sýna hversu veruleg áhrif skuldaafléttingin hefði á fjárhagsstöðu Ríkisútvarpsins. Þá séu ótalin áhrif hækkunar útvarpsgjaldsins.

Félagið vill að Alþingi fái í hendur samræmdar áætlanir um rekstur, efnahag og sjóðstreymi Ríkisútvarpsins fyrir árin 2027 til 2030 þar sem heildaráhrif fyrirhugaðra aðgerða verði metin áður en málið verður afgreitt.

Sýn telur að aflétting svo umfangsmikillar skuldar, samhliða breytingum á fjármögnun Ríkisútvarpsins, kalli á sérstakt mat samkvæmt ákvæðum EES-samningsins um ríkisaðstoð. mbl.is/Eyþór

Vill að hlutfallið verði hækkað í 15%

Sýn telur Ríkisútvarpið hafa fjárhagslegt svigrúm til að mæta skerðingu á tekjum af útvarpsgjaldi sem nemur 15% af auglýsingatekjum þess í stað þeirra 10% sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Fjárhæðin renni óskert til stuðnings einkareknum fjölmiðlum.

Slík skerðing næmi 395 til 415 milljónum króna á ári. Samkvæmt útreikningum Sýnar hefði Ríkisútvarpið engu að síður 200 til 220 milljónum króna meira ráðstöfunarfé á ári vegna fyrrgreindra aðgerða.

Félagið bendir einnig á að í aðgerðaáætlun stjórnvalda frá desember í fyrra hafi verið gert ráð fyrir 12% hlutfalli.

Í greinargerð frumvarpsins er hins vegar komist að þeirri niðurstöðu að 10% skerðing hafi neikvæð áhrif á sjóðstreymi Ríkisútvarpsins, að teknu tilliti til skuldaafléttingarinnar. Þar er miðað við 206 milljóna króna árlegar afborganir af láninu.

Ráðuneytið telur að frekari tekjuskerðing geti leitt til fækkunar stöðugilda, samdráttar í dagskrárframboði eða aukinna fjárframlaga ríkisins til Ríkisútvarpsins.

Vill setja hlutfallslegt þak á auglýsingatekjur

Sýn gagnrýnir jafnframt að fallið hafi verið frá því að setja þak á auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins.

Félagið hafnar því að með þeirri breytingu hafi verið komið til móts við sjónarmið þess. Sýn hafi ekki lagt til að horfið yrði alfarið frá því að setja þak heldur að miðað yrði við hlutfall af heildartekjum Ríkisútvarpsins í stað fastrar fjárhæðar.

Sýn vill að auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins verði að hámarki 10% af heildartekjum þess og að hlutfallið verði lækkað í áföngum úr 29%, sem það nemur nú að sögn félagsins.

Sýn telur að fyrirliggjandi frumvarp feli ekki í sér neinar nýjar beinar takmarkanir á umfangi auglýsingastarfsemi Ríkisútvarpsins. Þvert á móti geti skerðing opinberra framlaga skapað hvata fyrir Ríkisútvarpið til að sækja af meiri krafti inn á auglýsingamarkaðinn til að mæta tekjumissinum.

Sýn vill að auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins verði að hámarki 10% af heildartekjum þess og að hlutfallið verði lækkað í áföngum úr 29%, sem það nemur nú að sögn félagsins. mbl.is/Eyþór

Vill kanna fjárþörf dótturfélagsins

Sýn gerir einnig athugasemdir við fjárhagsstöðu RÚV sölu ehf., dótturfélags Ríkisútvarpsins.

Bókfært eigið fé félagsins nam 887,2 milljónum króna í árslok 2025 og var eiginfjárhlutfall þess 94,7%. Þá námu kröfur á móðurfélagið 368 milljónum króna.

Sýn tekur fram að ekki sé gengið út frá því að allt bókfært eigið fé dótturfélagsins sé laust til útgreiðslu.

Félagið telur hins vegar nauðsynlegt að kanna raunverulega rekstrarfjárþörf þess, viðskiptakjör milli félaganna og hvort nýta megi fjármuni umfram rekstrarfjárþörf dótturfélagsins til almannaþjónustu Ríkisútvarpsins áður en ríkissjóður tekur yfir skuldina.

Segir 40 milljónir vanta upp á lofaðan stuðning

Sýn gerir loks athugasemdir við fjárstuðning ríkisins við einkarekna fjölmiðla á yfirstandandi ári.

Í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla frá 19. desember í fyrra hafi verið heitið 100 milljóna króna viðbótarframlagi á þessu ári. Samkvæmt upplýsingum Sýnar hafi hins vegar aðeins 60 milljónir króna verið ætlaðar til þess.

Félagið fer þess því á leit við fjárlaganefnd að tryggt verði að þær 40 milljónir króna sem upp á vantar verði veittar vegna ársins í ár, óháð fyrirhuguðu 300 milljóna króna viðbótarframlagi til einkarekinna fjölmiðla á næsta ári.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab