Knattspyrnumaður varð fyrir afar óvenjulegum meiðslum og missti af leik

Cav Miley, fyrirliði enska utandeildarliðsins Chelmsford City, varð fyrir afar óvenjulegum meiðslum á dögunum.

Miley, sem er 31 árs gamall, missti af leik liðsins gegn Walton and Hersham á laugardag eftir að hafa snúið sig á ökkla á æfingu. Hann hafði þá stigið ofan í holu sem dýrið greifingi hafði grafið.

Miley var mættur aftur á völlinn á mánudag þegar Chelmsford vann 1-0 sigur á Maidstone United. Mark Cooper, stjóri liðsins, ræddi atvikið eftir leik.

„Allir segja mér að þetta hafi farið eins og eldur um sinu um netið en ég sagði bara satt. Hann datt ofan í greifingjaholu,“ sagði Cooper.

„Mér var fyrst sagt að þetta væri refahola en starfsmaður á æfingasvæðinu sagði mér svo að þetta væri greifingjahola.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab