Lýtalæknir sagður „töframaður“ eftir stórkostlega breytingu á 61 árs gamalli móður
Dr. Marc Levin, lýtalæknir í Beverly Hills sem sérhæfir sig í andlitslækningum, leggur áherslu á „mikla en ósýnilega endurnýjun andlitsins.“
Levin birtir reglulega myndir af sjúklingum sínum fyrir og eftir aðgerðir. Myndir sem hann birti nýlega af Helen, 61 árs hárgreiðslukonu, sem gekkst undir níu og hálfs tíma langa og stranga skurðaðgerð, vöktu mikla athygli meðal netverja.
Dr. Levin skrifaði með færslunni: „Þvílík umbreyting! Ekkert var látið ógert fyrir Helen. Hver einasti millimetri andlits hennar var skoðaður og tekið á honum á viðeigandi hátt.“
Hann útskýrði að persónuleiki Helen og fegurð haldist óbreytt og bætti við: „Hún er einfaldlega yngri útgáfa af sjálfri sér, hressari og með ferskara yfirbragð.“
Dr. Marc Levin
Levin segir „heildstæða endurnýjunarmeðferð“ Helenar hafa kostað 45 þúsund dali í viðtali við California Post. „Ég er tiltölulega ungur skurðlæknir og beiti því nýjustu aðferðum og tækni við andlitsendurnýjun og andlitslyftingar,“ sagði Levin.
Meðal þeirra aðgerða sem framkvæmdar voru má nefna umfangsmikla andlits- og hálslyftingu (svokallaða „deep-plane“ lyftingu), ennislyftingu með speglunartækni, augnlokaaðgerð á efri augnlokum, augnlokaaðgerð á neðri augnlokum án sýnilegra örva, fituflutning í andlit, meðferð með CO2-laser og minnkun á eyrnasneplum.
Netverjar létu hrifningu sína í ljós: „Algjörlega fallegt... þú ert svo hæfileikaríkur og fær,“ skrifaði einn, en annar bætti við: „Vá... þetta er stórkostlegur árangur!“
Aðrir voru fljótir að kalla skurðlækninn „töframann“ og „kraftaverkagerðarmann“ eftir að hafa séð útkomuna.
Í öðru myndbandi sagði Helen, sem er upprunalega frá Suður-Afríku, frá því hvernig aðgerðin hefði breytt öllu hennar viðhorfi. Sagði hún að henni hefði liðið hræðilega áður en hún lét loks verða af því að fara í aðgerðina.
„Ég horfði á ytra útlitið á mér og hugsaði: Guð minn góður, hvað er eiginlega að gerast hérna? Þetta samræmdist alls ekki því hvernig mér leið innra með mér,“ sagði Helen.
Þremur mánuðum eftir aðgerðina, hefur hún öðlast nýtt líf. „Mér finnst ég líta út eins og dóttir mín núna,“ sagði Helen og bætti við: „Takk fyrir að gefa mér sjálfstraustið aftur. Ég er svo heppin að hafa fengið besta og umhyggjusamasta skurðlækninn. Ég er einfaldlega svo þakklát,“ sagði hún.
Levin útskýrði að sjúklingar fari að sjá endanlega útlitið mótast innan tveggja til þriggja vikna frá aðgerð. Á þessu stutta tímabili „er hægt að fara út á meðal fólks án þess að nokkur taki eftir því að maður hafi farið í aðgerð, svo lengi sem maður er með hárið niðri og farða á sér.“
Hann tók fram að sjúklingar sæju „endanlegan árangur“ innan þriggja til fjögurra mánaða, en að útlitið myndi „halda áfram að batna jafnt og þétt í 10 til 12 mánuði eftir aðgerðina.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗