Fengu óskýr myndskeið af tveimur skuggaverum

Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á skemmdarverkum fyrir um tveimur og hálfum mánuði þegar fjöldi bíla var rispaður.

Flestar tilkynningar bárust frá Granda í Vesturbænum en einnig frá Seltjarnarnesi, Hlíðunum og Vogahverfi. Einn eða fleiri einstaklingar rispuðu ökutæki með tilheyrandi tjóni fyrir eigendur þeirra. Síðan þá hafa engar tilkynningar borist um rispaða bíla.

Guðmundur Pétur Guðmundsson lögreglufulltrúi segir málið enn óupplýst. Spurður út í myndefni tengt málinu, sem lögreglan auglýsti eftir, nefnir hann tvö myndskeið sem lögreglan fékk í hendurnar. Þar var þó ekki hægt að þekkja viðkomandi einstaklinga, enda myndefnið bæði óskýrt og tekið í myrkri.

„Rennir einhverju oddhvössu eftir bílhlið“

Í því fyrra, sem var fengið úr myndavél bifreiðar sem var rispuð í Skipholtinu, sést þegar „skuggavera rennir einhverju oddhvössu eftir bílhlið“, að sögn Guðmundar Péturs. Líklega var þar á ferðinni karlmaður á fullorðinsaldri.

Síðara myndskeiðið styður kenningu lögreglunnar um að um svokallað trend hafi verið að ræða hjá ungmennum. Þar sést ung stúlka ganga að bifreið með símann á lofti eins og hún sé að taka upp myndskeið. Það lítur út fyrir að hún ætli að rispa bifreiðina með lykli en gerir það síðan ekki. Þetta atvik átti sér stað nálægt Stakkholti, skammt frá Miklubraut.

Guðmundur Páll telur ólíklegt að þessi tvö mál séu skyld. Hann bætir við að stöku sinnum gerist það einnig að einstaklingar rispi bíla hjá öðrum í hefndarskyni.

Hann tekur einnig fram að maðurinn sem játaði að hafa brotið rúður í næstum því 30 bifreiðum á Seltjarnarnesi í byrjun nóvember tengist rispuðu bílunum ekki neitt.

Lögreglufulltrúinn hvetur foreldra til að fylgjast með því hvernig börnin þeirra nota símana sína í ljósi þess að svo virðist sem um trend hafi verið að ræða þegar kemur að flestum málunum tengdum rispuðu bílunum.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab