Kýldi seljandann og hljóp burt með vodkann
Maðurinn kýldi seljanda áfengis í andlitið og hljóp á brott með tvær vodkaflöskur þegar verið var að ganga frá greiðslu fyrir þær. Ljósmynd/Colourbox
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í átta mánaða fangelsi fyrir rán, fíkniefnalagabrot og peningaþvætti.
Maðurinn kýldi seljanda áfengis í andlitið og hljóp á brott með tvær vodkaflöskur þegar verið var að ganga frá greiðslu fyrir þær.
Kona sem var meðákærð í fíkniefnamálinu var dæmd í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir fíkniefnalagabrot og peningaþvætti.
Dómurinn taldi sannað að þau hefðu haft fíkniefni og lyf í vörslum sínum í söluskyni og aflað sér samtals tæplega 6,7 milljóna króna með refsiverðri háttsemi á sex mánaða tímabili.
Dómurinn var kveðinn upp 6. nóvember og birtur í dag.
Kýldi manninn þegar verið var að greiða
Ránið var framið á Akureyri aðfaranótt 25. apríl 2024. Brotaþolinn hafði samið við konu á Facebook um að selja henni tvær hálfs lítra flöskur af vodka fyrir 16 þúsund krónur. Tveir menn komu að sækja áfengið. Þegar annar þeirra hugðist millifæra greiðsluna kýldi hinn brotaþolann og hljóp af stað með flöskurnar.
Brotaþolinn bar fyrir dómi að hann hefði hlaupið á eftir manninum og náð honum. Maðurinn hefði þá misst flöskurnar og kýlt hann ítrekað í andlitið. Brotaþolinn hlaut sár á vörum, vír úr tannréttingum losnaði og brotnaði úr glerungi einnar tannar.
Ákærði kvaðst ekkert muna eftir atvikinu. Brotaþolanum og manninum sem var í för með ákærða bar saman um hvenær fyrsta höggið féll. Dómurinn taldi áverkavottorð styðja frásögn brotaþolans um að höggin hefðu verið fleiri og taldi jafnframt sannað að maðurinn hefði tekið flöskurnar. Sú staðreynd að brotaþolinn náði þeim aftur breytti engu um að brotið teldist rán.
Manninum var gert að greiða brotaþolanum 300 þúsund krónur í miskabætur, auk vaxta, og sömu fjárhæð í málskostnað.
Tengdu símskilaboð við innborganir
Í júlí 2024 fylgdist lögregla með manninum á Akureyri vegna gruns um fíkniefnasölu. Eftirlitið leiddi lögreglu að íbúð í bílskúr sem maðurinn og konan höfðu á skammtímaleigu. Þar voru þau handtekin og við leit fundust tæp 59 grömm af maríhúana, 14 Stilnoct-töflur og tæp tvö grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni. Þar fundust einnig vog, ónotaðir smelluláspokar og bók með því sem lögregla taldi vera lista yfir skuldir.
Bæði gengust við því að hafa haft efnin og lyfin í vörslum sínum en neituðu að þau hefðu verið ætluð til sölu. Dómurinn leit til þess að kannabisinu hafði verið skipt í litla poka og að skilaboð í símum beggja vörðuðu greinilega dreifingu kannabisefna og lyfja.
Lögregla greindi bankafærslur þeirra frá 23. janúar til 23. júlí 2024 og fann í sumum tilvikum skýr tengsl milli símskilaboða og innborgana. Ákærðu vísuðu meðal annars til viðskipta með rafmyntir og sölu á ýmsum munum. Dómurinn taldi skýringar þeirra á fjölda innborgana og uppruna reiðufjár ótrúverðugar og benti á að þau hefðu engin gögn lagt fram þeim til stuðnings.
Dómurinn tók fram að ákæruvaldið bæri sönnunarbyrðina um uppruna fjárins. Hann taldi gögnin í heild útiloka að féð væri af lögmætum uppruna. Maðurinn hefði aflað sér rúmlega 4,8 milljóna króna og konan tæplega 1,9 milljóna með sölu fíkniefna eða lyfja eða annarri refsiverðri háttsemi.
Fann maríhúana á bak við sófa
Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir peningaþvætti vegna sölu á rúmum 29 grömmum af maríhúana fyrir 80 þúsund krónur. Upptaka úr búkmyndavél lögreglu sýndi hann teygja sig á bak við sófa þar sem efnin fundust. Hann hélt á seðlum þegar lögregla bað hann að rétta upp hendur. Dómurinn byggði á upptökunni og framburði vitna og taldi að vörslur efnanna hefðu færst til kaupandans við söluna.
Maðurinn var jafnframt sakfelldur samkvæmt játningu sinni fyrir að hafa haft tæp tíu grömm af maríhúana í vörslum sínum í maí 2024. Konan játaði að hafa haft rúmt gramm af maríhúana í vörslum sínum þegar lögregla leitaði á heimili hennar í apríl 2025. Dómurinn gerði upptæk fíkniefni og lyf auk samtals 275 þúsund króna í reiðufé.
Rauf skilorð eldri dóms
Refsing mannsins var ákveðin sem hegningarauki við fyrri dóma. Við ákvörðun refsingarinnar leit dómurinn einnig til þess að maðurinn hefði ítrekað gerst sekur um auðgunarbrot.
Konan hafði með brotum sínum rofið skilorð eldri dóms. Dómurinn tók fyrri dóminn upp og ákvað henni refsingu í einu lagi fyrir brotin. Við ákvörðun um að skilorðsbinda refsinguna leit dómurinn meðal annars til þess að konan sagðist hafa farið í vímuefnameðferð, sótt fundi að henni lokinni og gengist undir vikuleg fíkniefnapróf. Málsmeðferðin hafði jafnframt tafist verulega af ástæðum sem henni varð ekki kennt um.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗