Uppskrift Marilyn Monroe seld á tvær milljónir

Marilyn Monroe hefði orðið aldargömul 1. júní síðastliðinn. Þessi ljósmynd var tekin árið 1962 við tökur á Something’s Got to Give í leikstjórn George Cukor. Það var síðasta kvikmyndaverkefni leikkonunnar og varð aldrei fullgert. Ljósmynd/AFP

Handskrifuð uppskrift að kalkúnafyllingu (e. stuffing), sem Marilyn Monroe skrifaði á minnisblað árið 1954, var seld á uppboði hjá Julien’s Auctions fyrr á árinu. Samkvæmt vef uppboðshússins seldist miðinn á 16 þúsund bandaríkjadali, eða um tvær milljónir íslenskra króna, en áætlað verðmæti hans var 2.000–3.000 dalir.

Uppskriftin var hluti af uppboðinu 100 Years of Marilyn, sem haldið var í tilefni þess að leikkonan hefði orðið aldargömul.

Í uppskriftinni er franskt súrdeigsbrauð lagt í kalt vatn og síðan „undið“. Kjúklingalifur og hjörtu eru soðin í vatni. Meðal annarra hráefna eru laukur, sellerí, rósmarín, timjan, lárviðarlauf, rifinn parmesanostur, fleiri krydd, rúsínur og þrjár tegundir af hnetum: valhnetur, kastaníuhnetur og jarðhnetur.

Þá eru tilgreind „1 eða 2 harðsoðin egg – söxuð“ og leiðbeiningar um að krydda kjúkling eða kalkún að innan áður en fyllingin er væntanlega sett í hann. „Saumið fuglana saman eða klemmið þá,“ skrifaði Monroe í leiðbeiningum sínum um undirbúning fuglanna áður en þeir færu í ofninn.

Með réttinum lagði hún til kartöflur, sveppi og baunir.

„Enginn hvítlaukur“

Uppskriftin er skrifuð á minnisblað frá City Title Insurance Company og efst í vinstra horninu stendur: „Enginn hvítlaukur.“

Julien’s Auctions bendir á að samkvæmt sumum heimildum hafi eiginmanni hennar, Joe DiMaggio, ekki líkað við hvítlauk. Uppskriftin sé því líklega frá þeim tíma þegar þau voru gift.

Monroe og DiMaggio, atvinnuhafnaboltamaður hjá New York Yankees, giftust árið 1954 en skildu níu mánuðum síðar.

Að sögn uppboðshússins kom uppskriftin fyrst í leitirnar fyrir meira en áratug. Meðal annarra muna á uppboðinu voru handrit með handskrifuðum athugasemdum úr Something’s Got to Give, undirritaður samningur við William Morris Agency frá 1949, áður óséðar ljósmyndir og skyggnur, snyrtivörur og persónulegir munir sem Monroe hafði átt og notað.

People

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab