Segir að allir ættu að birgja sig upp af þessum 15 vörum
Fókus
Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 12:55
Það er gott að eiga vörur sem endast vel.
Talsverð umræða hefur verið síðustu vikur og mánuði um mikilvægi þess að fólk komi sér upp neyðarbirgðum ef til neyðarástands kemur af einhverjum ástæðum.
Bandaríski efnishöfundurinn Chris Thorn, sem sérhæfir sig í viðbúnaði við hamförum, tók fyrir nokkru saman lista yfir þær vörur sem hann telur að fólk ætti að eiga til á heimilinu ef allt fer á versta veg.
Þótt myndband Thorns sé orðið nokkuð gamalt standa ráðleggingar hans ágætlega tímans tönn. Vefurinn VT rifjaði þær upp á dögunum.
Ódýrar vörur með gott geymsluþol
Thorn, sem heldur úti YouTube-rásinni Drop Forged Survival, miðar við að fólk geti bjargað sér í allt að 90 daga. Flestar vörurnar á lista hans fást í venjulegum matvöruverslunum, eru tiltölulega ódýrar og hafa gott geymsluþol.
Hafrar eru í miklu uppáhaldi hjá Thorn en hann mælir einnig sérstaklega með hunangi sem hefur einstaklega langt geymsluþol.
„Þú setur hafrana einfaldlega í sjóðandi vatn, bætir við hunangi eða sykri og smá mjólk. Þá ertu kominn með saðsama og næringarríka máltíð,“ segir hann.
Vodki á listanum
Öllu óvæntara er að Thorn mælir með því að fólk eigi vodka til á heimilinu. Hann telur að áfengi gæti meðal annars nýst sem skiptimynt fyrir matvæli og aðrar nauðsynjar ef hefðbundin viðskipti færu úr skorðum.
Þá segir hann hrísgrjón og baunir vera einhverja bestu samsetningu matvæla sem völ er á við erfiðar aðstæður. Hvort tveggja sé ódýrt og saman veiti þau bæði orku og prótein.
Meðal þess sem Thorn mælir með að fólk eigi til er eftirfarandi:
- Hafrar
- Hunang
- Vodki
- Eplaedik
- Mjólkurduft
- Niðursoðið kjöt
- Drykkjarvatn og vatnssía
- Próteinduft
- Baunir
- Hrísgrjón
- Pasta
- Duft til að gera kartöflumús
- Kryddjurtir og krydd
- Vítamín
Thorn bendir á að mataræðið geti fljótt orðið einhæft við þessar aðstæður og því sé ekki úr vegi að eiga gott úrval af kryddi.
Þá nefnir hann avókadóolíu, skírt smjör, kaffi og þurrkað nautakjöt sem vörur sem einnig gætu komið sér vel.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗