Viðtal í gær vekur athygli - Hafði lítinn húmor fyrir jákvæðni spyrilsins
Rayan Cherki var ómyrkur í máli eftir 2-2 jafntefli Manchester City við Napoli í Meistaradeild Evrópu í gær.
Frakkinn jafnaði metin með glæsilegu marki á 86. mínútu og var valinn maður leiksins. Hann hafði þó lítinn áhuga á að ræða eigin frammistöðu eftir leik.
„Mér er alveg sama þótt ég hafi skorað. Ég vil bara vinna,“ sagði Cherki í samtali við TNT Sports.
Hann sagði lið City hafa spilað ágætlega en að það hefði vantað meiri kraft í leik liðsins. Hann kallaði eftir því að leikmenn legðu harðar að sér.
City heimsækir topplið Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag og tók Cherki fram að ekkert annað en sigur kæmi til greina þar, en City hefur gengið erfiðlega að undanförnu.
“I don't care, I just want to win the game” 💬 Rayan Cherki's frustration is clear as Man City's winless run continues. 🎙️ @LiamMacdevitt | 📺 Stream now on TNT Sports & HBO Max https://t.co/fRCRh6tXYB https://t.co/liJiXRZsy1
— Football on TNT Sports (@footballontnt) November 24, 2026
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗