Varaþingmaður kallar eftir nýjum frídegi
Sigurþóra Bergsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, segir að henni finnist að 1. desember eigi að verða árlegur frídagur á Íslandi, segir hún í færslu á Facebook að það megi skoða að taka út annan frídag í staðinn og nefnir hún sérstaklega uppstigningardag.
„Mér finnst að 1. desember ætti að vera fridagur á Íslandi,“ segir Sigurþóra og nefnir þrjár ástæður fyrir því.
„Við eigum að halda uppa á fullveldið okkar.“
„Þetta gæti verið gott upphaf að aðventu.“
„Það er mjög langt frá síðasta frídegi og margir gætu nýtt slíkan dag í allskonar.“
Þá nefnir hún að það mætti taka annan frídag út í staðinn.
„Uppstigningardagur hefur afar lítið gildi fyrir flesta og það er svo mikið af frídögum á þeim árstíma hvort eð er.“
Margir hafa tekið undir með Sigurþóru, þar á meðal fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason sem segir: „Góð hugmynd - enginn frídagur allt haustið og fram að jólum!“
Frídagar á Íslandi eru bundnir í lögin um 40 stunda vinnuviku frá 1971, þeim var síðast breytt árið 1982 til að bæta við frídegi verslunarmanna. Það er þó tekið fram í lögunum að það megi víkja frá þeim með samningum við heildarsamtök á við ASÍ eða BSRB.
Gunnar Salvarsson, fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður, skrifaði einnig um málið í morgun og rifjaði upp að eitt sinn hafi 1. desember verið frídagur í skólum og að einhverju leyti á vinnumarkaði.
Sjá einnig: Gunnar rifjar upp gleymdan frídag Íslendinga:„Er það ekki heldur dapurlegt?“
Árið 1963 hafi sérstakur kjaradómur orðið til þess að dagurinn missti stöðu sína sem frídagur hjá tilteknum starfsstéttum og árið 1995 hafi verið samið um kennsluskyldu á fullveldisdaginn.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗