Kántrýstjarna heldur tónleika í Eldborg í sumar

Kristinn H. Guðnason

Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 13:13

Paisley mætir aftur í Eldborg en nú verða tónleikarnir af allt öðrum meiði. Mynd/Getty

Kántrýsöngvarinn Brad Paisley heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu föstudaginn 18. júní næstkomandi. Er þetta í annað sinn sem Paisley kemur til landsins en hann hélt tónleika í sama sal í febrúar árið 2024. Tónleikarnir nú verða hins vegar af allt öðrum meiði.

Hinn 54 ára gamli Paisley sem kemur frá Vestur Virgínu í Bandaríkjunum sló fyrst í gegn árið 1999. Hann hefur gefið út tólf stúdíóplötur sem hafa selt í bílförmum og átt fjölmarga slagara sem hafa ratað á  vinsældalista vestanhafs.

Þá hefur hann starfað með öðrum kántrýlistamönnum á borð við Dolly Parton, Carrie Underwood, Keith Urban og Alison Krauss. Einnig hefur hann hlotið þrenn Grammy verðlaun.

„Þegar Brad Paisley kom fyrst til Íslands í febrúar 2024 fyllti hann Eldborg af kraftmikilli
kántrítónlist ásamt hljómsveit sinni. Nú, rúmum þremur árum síðar, snýr hann aftur í
sama sal, en að þessu sinni verður upplifunin allt önnur,“ segir í tilkynningu tónleikahaldarns Tónleiks. „Að þessu sinni stendur hann einn á sviðinu með gítarinn sinn og býður upp á órafmagnað og persónulegt tónleikakvöld þar sem nándin við áhorfendur verður í fyrirrúmi.“

Miðasalan hefst á föstudag, 27. nóvember á tix.is og harpa.is. Miðaverð er á bilinu 12.990 til 22.990 krónur.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab