Eru hætt við að hafa þyrlupall

Framkvæmdir á Laxárbakka gætu hafist seint á næsta ári.

Framkvæmdir á Laxárbakka gætu hafist seint á næsta ári. Tölvumynd/Laxárbakki Resort ehf.

Horfið hefur verið frá hugmyndum um að hafa þyrlupall við lúxushótel á Laxárbakka í Eyja- og Miklaholtshreppi á sunnanverðu Snæfellsnesi.

Greint var frá áformum um byggingu hótelsins í Morgunblaðinu í gær og var þar vísað í upphafleg gögn þar sem gert var ráð fyrir þyrlupalli er gæti nýst við ferðir gesta hótelsins. Var gert ráð fyrir allt að fimm ferðum þyrlu á dag til og frá hótelinu.

Samkvæmt upplýsingum frá Róberti Aroni Róbertssyni, framkvæmdastjóra fasteignaþróunarfélagsins Festis, sem hyggst byggja hótelið, var hætt við þyrlupallinn er unnið var að gerð umhverfismatsskýrslu um hótelbygginguna. Skýrslan er nú í kynningu.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab