Auður og Hildur Vala tóku yfir svítuna

Auður Stefánsdóttir og Hildur Vala Baldursdóttir.

Auður Stefánsdóttir og Hildur Vala Baldursdóttir. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Það fór vel um gesti í þakíbúðarsvítu hótelsins The Reykjavík EDITION á dögunum þegar íslenska húðvörumerkið Bioeffect og Húðlæknastöðin fögnuðu farsælu samstarfi sínu. Vel völdum hópi kvenna var boðið til glæsilegs viðburðar þar sem húðumhirða, íslensk vísindi og nýjungar í húðmeðferðum voru í brennidepli.

Um ár er liðið frá því að Bioeffect setti 3xGF Recovery-vörulínuna á markað en hún var sérstaklega þróuð til að styðja við bata húðarinnar eftir húðmeðferðir og viðhalda árangri þeirra.

Liv Bergþórsdóttir forstjóri Bioeffect tók á móti gestum og sagði frá tilurð vörulínunnar. Hún sagði mikla aukningu hafa orðið í vinsældum húðmeðferða á heimsvísu og samhliða því hefði eftirspurn eftir húðvörum sem styðja við bataferli húðarinnar aukist.

Vekja athygli vestanhafs

Íslensku húðvörurnar hafa vakið töluverða athygli á alþjóðavettvangi að undanförnu. Auðbjörg Óskarsdóttir, gjarnan kölluð Aubí, framkvæmdastjóri fyrirtækisins í Norður-Ameríku, sagði gestum frá velgengni fyrirtækisins vestanhafs og vaxandi markaði í Bandaríkjunum.

Nýjasta viðbótin við vörulínuna, Recovery Hydrogel Mask, var á dögunum valin besti rakagefandi andlitsmaskinn á fegurðarverðlaunum bandaríska tímaritsins People. Þá hefur augnserum úr sömu línu hlotið viðurkenningar hjá bæði Women’s Health og Coveteur á árinu.

Lasermeðferðir njóta vaxandi vinsælda

Húðlæknarnir Jenna Huld Eysteinsdóttir og Ragna Hlín Þorleifsdóttir hjá Húðlæknastöðinni fræddu gesti um vinsælustu húðmeðferðirnar um þessar mundir og mikilvægi þess að hugsa vel um húðina að þeim loknum.

„Hjá okkur starfa 11 húðlæknar og það er gríðarleg aukning í eftirspurn eftir húðmeðferðum. Vinsælustu meðferðirnar eru toxín og fylliefni en lasermeðferðir á borð við Fraxel Pro og Djúpan Erbíum-laser njóta vaxandi vinsælda hjá bæði konum og körlum,“ sagði Ragna Hlín.

Hún sagði fólk almennt vilja komast sem fyrst aftur í daglegt amstur eftir slíkar meðferðir og því skipti batatíminn miklu máli.

Jenna Huld benti jafnframt á mikilvægi húðumhirðu eftir lasermeðferðir, enda gætu þeim fylgt töluverð óþægindi, roði og erting.

Í boðinu voru nokkrar eðaldrottningar eins og Inga Lind Karlsdóttir, Birna Hafstein, Inga Eiríksdóttir og Ragnhildur Sveinsdóttir.

Guðrún Einarsdóttir, Ingunn Svala Leifsdóttir, Elín Reynisdóttir og Ella Björnsdóttir.

Guðrún Einarsdóttir, Ingunn Svala Leifsdóttir, Elín Reynisdóttir og Ella Björnsdóttir. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Ásta Pétursdóttir, Inga Eiríksdóttir og Hulda Halldóra Tryggvadóttir.

Ásta Pétursdóttir, Inga Eiríksdóttir og Hulda Halldóra Tryggvadóttir. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Ásta Pétursdóttir.

Ásta Pétursdóttir. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Það er ár síðan 3xGF Recovery-vörulínan frá Bioeffect kom á markað. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Auður Einarsdóttir og Helga Sverrisdóttir.

Auður Einarsdóttir og Helga Sverrisdóttir. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Bryndís Lára Halldórsdóttir og Brynja Björg Kristjánsdóttir.

Bryndís Lára Halldórsdóttir og Brynja Björg Kristjánsdóttir. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Bryndís og Hulda Halldóra Tryggvadóttir.

Bryndís og Hulda Halldóra Tryggvadóttir. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Inga Lind Karlsdóttir, Ragnhildur Sveinsdóttir, Auður Einarsdóttir og Birna Hafstein.

Inga Lind Karlsdóttir, Ragnhildur Sveinsdóttir, Auður Einarsdóttir og Birna Hafstein. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Jenna Huld Eysteinsdóttir og Ragna Hlín Þorleifsdóttir.

Jenna Huld Eysteinsdóttir og Ragna Hlín Þorleifsdóttir. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Aubí, Ragna, Hlín, Jenna, Liv, Berglind og Ásdís.

Aubí, Ragna, Hlín, Jenna, Liv, Berglind og Ásdís. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Aubí Óskarsdóttir og Margrét Guðmundsdóttir.

Aubí Óskarsdóttir og Margrét Guðmundsdóttir. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Auður Stefánsdóttir.

Auður Stefánsdóttir. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Karítas Diðriksdóttir, Sigríður Erlendsdóttir og Margrét Guðmundsdóttir.

Karítas Diðriksdóttir, Sigríður Erlendsdóttir og Margrét Guðmundsdóttir. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Margrét Íris Ármann og Helga María Albertsdóttir.

Margrét Íris Ármann og Helga María Albertsdóttir. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Ragnhildur Sveinsdóttir og Ragna Hlín Þorleifsdóttir.

Ragnhildur Sveinsdóttir og Ragna Hlín Þorleifsdóttir. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab