Bein útsending: Sprengja tæplega fimm tonn af sprengiefni

Við skotfæraverksmiðjuna þar sem sprengt verður í dag.

Við skotfæraverksmiðjuna þar sem sprengt verður í dag. AFP

Bandaríkjaher hyggst í dag sprengja tæplega fimm tonn af sprengiefni í skotfæraverksmiðju hersins í Middletown í Iowa-ríki.

Fylgjast má með sprengingunni í beinni útsendingu fréttastofunnar Associated Press hér að neðan. 

Fyrirhugað er að sprengja kl. 15 að íslenskum tíma.

Óttast dreifingu blýryks

Um er að ræða allar birgðir Bandaríkjahers af sprengiefninu blýasíði, sem geymdar hafa verið í verksmiðjunni um árabil. Efnið er orðið svo óstöðugt að sérfræðingar hersins telja of hættulegt að flytja það úr stað.

Sprengingunni hefur ítrekað verið frestað, meðal annars vegna áhyggna af því að eitrað blýryk berist yfir nærliggjandi byggðir og landbúnaðarsvæði.

Umhverfisverndarsamtök freistuðu þess að koma í veg fyrir sprenginguna fyrir dómstólum en alríkisáfrýjunardómstóll heimilaði hana á mánudag.

Íbúum Middletown og hluta nærliggjandi svæða hefur verið ráðlagt að yfirgefa heimili sín tímabundið. Öðrum íbúum á svæðinu hefur verið ráðlagt að halda sig innandyra og loka gluggum og dyrum.

Að sögn forsvarsmanna hersins er hættan fyrir almenning mun meiri ef efnið springur af sjálfu sér en ef sprengingin er gerð með þessum hætti.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab