Segir Rússa hvergi nærri hætta

Þorgerður Katrín ræðir við blaðamann mbl.is.

Þorgerður Katrín ræðir við blaðamann mbl.is. mbl.is/Eyþór

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir allt benda til þess að Rússar muni ekki láta af árásum sínum víðs vegar um Evrópu. 

Þetta sagði hún í samtali við mbl.is í morgun að lokinni undirskrift samninga sem ætlaðir eru til eflingar viðbragðs- og eftirlitsgetu Landhelgisgæslu Íslands og ríkislögreglustjóra.

Þorgerður segir samningana, sem eru innan fjárheimilda næsta árs og hljóða upp á 410 milljónir króna, sýna að ríkisstjórnin sé á fullu að auka öryggi og tryggja varnir landsins. 

Skrifað var undir samningana um borð í varðskipinu Þór í dag. mbl.is/Eyþór

Ýtir undir þau merki sem við viljum senda til NATO

Þorgerður segir annars vegar samninginn við Landhelgisgæsluna, sem hljóðar upp á 160 milljónir króna, vera til þess fallinn að efla drónavarnir, tækjakost og fleira sem þurfi að hafa yfir að ráða, meðal annars þegar bandalags- og vinaþjóðir Íslands koma til landsins í loftrýmisgæslu, eftirlit og fleira. 

„Það ýtir undir þessi merki sem við viljum senda til NATO, að við séum að halda áfram að efla okkur. Við erum búin að vera að gera það á umliðnum mánuðum og misserum og við höldum áfram,“ segir hún.

Segir hún hins vegar samninginn við ríkislögreglustjóra, sem hljóðar upp á 250 milljónir króna, snúast um stuðning við sérsveitina, meðal annars með kaupum á sérútbúnum bifreiðum, ásamt drónavörnum og eftirliti. 

„Það er breyttur heimur og sú styrking mun nýtast líka í þágu varnar- og öryggismála,“ segir hún og undirstrikar framlag ríkisstjórnarinnar til málanna: „Í fyrsta lagi kláruðum við fyrstu og einu varnar- og öryggisstefnu Íslands og í öðru lagi erum við búin að setja á laggirnar ráðherranefnd um varnar- og öryggismál.“

Ekki kölluð Hergerður að ástæðulausu

Spurð um stöðu Íslands í varnarmálum í ljósi aukins þunga í dróna- og tölvuárásum segir Þorgerður ekkert ríki í heiminum fullbúið undir átök sem ekki er hægt að sjá fyrir. 

„Það er af ástæðu sem ég hef verið kölluð Hergerður en ég hef verið að tala um fjölþáttaógnir og það þýðir ekkert annað en nútímaárásir á samfélagið,“ segir hún.

Þá bendir hún á nýlegar fregnir af banatilræði í Danmörku í september sem skipulagt var af rússneskum yfirvöldum. 

„Þetta er allt gert til þess að reyna að ýta undir sundrungu og kljúfa samstöðu meðal Evrópuríkja og þeir munu ekkert hætta,“ segir hún. Þær upplýsingar sem henni hafa borist bendi til þess að þeir séu rétt að byrja. 

Þorgerður segir árásirnar aðeins lítið brot af því sem Evrópa megi búast við og að á þeim fundum sem hún sækir sé rauði þráðurinn yfirleitt að ríki þurfi að vera meðvituð um stöðuna og skerpa varnir sínar.

„Við getum gert ákveðna hluti en við þurfum að treysta líka á gott alþjóðlegt samstarf við Evrópuríki, við bandalagsríkin okkar í NATO á þessu sviði.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab