Kaldar kveðjur til Argentínumannsins
Unai Emery, knattspyrnustjóri Aston Villa, sagði að Alejandro Garnacho hefði ekki verið í leikmannahópnum gegn Galatasaray á þriðjudag vegna þess að hann hefði valið þá leikmenn sem hann taldi henta leiknum best.
„Í dag eru leikmennirnir sem voru hér þeir sem ég tel að séu bestu leikmennirnir til að vera hér með okkur,“ sagði Emery á blaðamannafundi eftir leikinn, sem Galatasaray vann 1:0.
Hinn 22 ára gamli Garnacho, sem er að láni frá Chelsea, hefur aðeins komið við sögu í fjórum leikjum á tímabilinu og spilað 34 mínútur í úrvalsdeildinni.
Villa nýtti ekki eitt sæti á varamannabekknum og var með tvo varamarkverði. Þrátt fyrir það var ekkert pláss fyrir Argentínumanninn.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗