Sterling fékk eins árs dóm

Sterling fékk skilorðsbundinn dóm.

Sterling fékk skilorðsbundinn dóm. AFP/Isabella Bonotto

Raheem Sterling, fyrrverandi kantmaður enska landsliðsins í fótbolta, var í dag dæmdur í 12 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til 18 mánaða. Hann játaði á sig hættulegan akstur, vörslu hláturgass og að hafa neitað að gefa öndunarsýni.

Héraðsdómarinn Kirsty Allman dæmdi hann einnig til að sinna ólaunaðri samfélagsþjónustu í 100 klukkustundir. Hún svipti hann einnig ökuréttindum í tvö ár.

Hinn 31 árs gamli Sterling ók Lamborghini-bifreið að verðmæti 270.000 punda á M25- og M3-hraðbrautunum í morgunumferðinni. Einn þeirra sem hringdu lýsti akstri hans sem „algjörlega skelfilegum“ og annar óttaðist að hann „myndi drepa einhvern“.

Bíllinn fór loks út af A327-veginum og hafnaði á málmhliði skömmu eftir klukkan níu um morguninn.

Lögreglan fann Sterling í farþegasætinu með tvö hláturgashylki í kjöltunni. Hann sagði lögreglumönnum að hann ætti við vandamál að stríða vegna hláturgass og að hann hefði ekki sofið alla nóttina og væri þreyttur og ringlaður.

Sterling lék 82 landsleiki fyrir England og vann fjóra Englandsmeistaratitla með Manchester City. Hann hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Feyenoord í Hollandi í lok síðasta tímabils.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab