Balogun á Old Trafford? - Þekkir Pochettino vel
Manchester United hefur áhuga á Folarin Balogun, framherja Monaco, en The Times greinir frá.
United ætlar sér að styrkja framlínuna í janúar en Benjamin Sesko er sem stendur frá vegna meiðsla. Balogun, sem er fyrrum leikmaður Arsenal, er einn þeirra sem er á blaði.
Mauricio Pochettino þekkir vel til Balogun frá tíma sínum sem landsliðsþjálfari Bandaríkjanna og ku framherjinn vera spenntur fyrir því að vinna með Argentínumanninum á ný.
Balogun, sem er 25 ára gamall, var nálægt því að ganga í raðir Everton fyrir 40 milljónir punda í sumar og er enn opinn fyrir því að yfirgefa Monaco.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗