Varð ekki fótaskortur þegar gervifóturinn datt af - Landaði fullu húsi stiga og sigri
Ezra Frech lét ekkert stoppa sig þegar gervifótur hans datt af í miðjum frjálsum dansi í úrslitaþætti dansþáttanna Dancing With The Stars.
Það getur allt gerst í beinni útsendingu og í úrslitaþætti 35. þáttaraðar DWTS í gær gerðist það að gervifótur Ezra Frech datt af þar sem hann dansaði með dansfélaga sínum, Daniellu Karagach.
Frech hóf dansinn án gervifótarins, en gafst svo stund til að festa hann á sig. Það fór hins vegar svo að skömmu síðar þegar Frech stökk niður tröppur og lenti á dansgólfinu, missti hann gervifótinn aftur. Undir hljómaði lag Linkin Park, Numb.
Frech tókst fljótt að setja gervifótinn aftur á sig og klára dansatriðið, sem innihélt meðal annars dansara í hjólastólum og stórkostlega danshönnun.
„Gervifóturinn átti alls ekki að losna, en þvílík endurkoma,“ sagði Alfonso Ribeiro, meðstjórnandi þáttarins, eftir atriðið.
„Ezra, þú ert hetja,“ sagði Derek Hough þegar dómararnir gáfu umsagnir sínar, en Carrie Ann Inaba hrósaði Karagach fyrir að „skapa algjörlega nýtt tungumál“ í dansi.
Atriðið skilaði Frech og Karagach 30 stigum af 30 mögulegum, sem gerði það að verkum að heildarstigafjöldi þeirra í úrslitunum var fullkominn: 90 stig af 90 mögulegum. Þau fóru með sigur af hólmi í þáttaröðinni og hlutu Mirrorball-verðlaunagripinn, sem kenndur er við Len Goodman.
Frech, sem er 21 árs, er frjálsíþróttamaður sem keppir í hástökki, langstökki og spretthlaupum. Hann hefur tekið þátt á tveimur Ólympíumótum fatlaðra árið 2020 og árið 2024 vann hann tvenn gullverðlaun. Hann vann einnig tvenn silfurverðlaun á Parapan-Ameríkuleikunum árið 2019.
Daniella Brittany Karagach Pashkova er atvinnudansari í latneskum dönsum og samkvæmisdönsum, auk þess að starfa sem danshöfundur. Hún hefur dansað í DWTS frá árinu 2019 og vann keppnina árið 2021 ásamt körfuboltaleikmanninum Iman Shumpert.
„Ég vil að þetta verði fagnaðarlæti yfir því hverju er hægt að áorka þegar maður er öðruvísi,“ sagði Frech í innslagi fyrir sýninguna. Hann var greinilega snortinn þegar hann ræddi um hvernig Karagach hefur tekið gervifæti hans opnum örmum.
„Lagið snýst um að brjóta niður staðalímyndir. Þetta er engin harmasaga, heldur snýst þetta allt um styrk,“ sagði Frech. Hann upplýsti að í dansinum kæmu fram „hæfileikaríkir dansarar í hjólastólum, því við viljum breyta því hvernig fólk lítur á fötlun í gegnum þennan dans.“
Þetta var síðasti dans parsins þetta kvöldið, en áður höfðu þau dansað tangó við lagið Levels með Avicii í liðnum Instant Dance Challenge og salsa við lagið Danza Kuduro með Don Omar í umferðinni Val dómaranna.
Karagach, sem er 33 ára, gaf áður til kynna að frjálsi dansinn þeirra gæti vakið mikla athygli á dansgólfinu.
„Þetta hefur svo sannarlega aldrei sést áður eða, við skulum orða það þannig: þetta hefur aldrei gerst í þessum þætti,“ sagði dansarinn, sem áður hefur unnið keppnina.
„Dansstíllinn sem við notum er afar sérstakur... hann er mjög kraftmikill. Og ef hann er framkvæmdur rétt gæti þetta svo sannarlega orðið söguleg stund í sögu DWTS.
Í viðtali sem birt var á opinberri Instagram-síðu þáttarins DWTS á þriðjudag, velti hinn 21 árs gamli Frech því fyrir sér hvað hann hefði lært af þátttöku sinni í þættinum.
„Þegar ég kom inn í þessa keppni var dans langt utan við þægindarammann minn hvað þá samkvæmisdans, og hvað þá að gera það í beinni útsendingu í sjónvarpi,“ sagði hann. „Ég vissi ekki einu sinni hvað ég væri um að gera. Ég vissi ekki hver takmörk mín yrðu.“
Frech segist hafa uppgötvað að hann væri „fær um að gera hluti sem hann hélt bókstaflega að væru ómögulegir.“ „Þessi þáttur hefur skapað svo margar dásamlegar minningar fyrir mig á þessu tímabili og hefur um leið verið eitt það erfiðasta sem ég hef nokkurn tímann þurft að takast á við.“
„Að vinna verðlaunagripinn væri til marks um að aðstæður þínar skipti ekki máli; það skiptir ekki máli hvers kyns mótlæti þú mætir eða hvaða áskoranir verða á vegi þínum. Allt er mögulegt.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗