Móðir írsku stúlkunnar sem lést við Krýsuvíkurveg vill ekki að kletturinn verði fjarlægður – „Þessi klettur er núna minningarreitur“
Samantha Large, móðir Hannah Jane Large, sem lét lífið ásamt þremur öðrum ungmennum í bílslysi á Krýsuvíkurvegi í lok ágústmánaðar, er andsnúin þeim áformum Vegagerðarinnar að fjarlæga klett á staðnum þar sem slysið varð.
Bíllinn sem stúlkan var farþegi í hafnaði á hraunkletti utan vegar en talið er að bíllinn hafi verið á yfir 220 km hraða þegar slysið varð.
Vegagerðin vill láta fjarlægja klettinn vegna slysahættu. Vinir Hönnu og móðir hennar vilja að fallið verði frá þeim áformum og benda á að kletturinn sé núna minningarreitur um hana fyrir fjölskyldu hennar og vini.
Zuzanna, vinkona Hönnu, skrifar pistil í Facebook-hópinn Beautytips og birtir jafnframt orðsendingu frá móður Hönnu. Zuzanna skrifar:
„Ég bið ykkur að hjálpa okkur að mótmæla því að steinninn og krossarnir við Krýsuvík verði ekki fjarlægðir þar sem vinkona mín Hannah lést. Hún var ekki grafin hér á Íslandi, svo slysstaðurinn er eini staðurinn þar sem við getum farið með blóm og kerti og talað við hana. Það er sorglegur staður að heimsækja, en um leið fallegur fyrir okkur sem söknum hennar. Þessi staður er mikilvægur minningarstaður fyrir okkur sem söknum hennar og annarra sem létust þarna. Að fjarlægja steininn leysir ekkert. Það sem þarf er að bæta umferðaröryggi og setja upp ljósastaura til að koma í veg fyrir fleiri slys. Vinsamlegast takið nokkrar mínútur og sendið tölvupóst til að mótmæla þessu. Hjálpumst að við að láta rödd okkar heyrast. Þetta er skilaboð sem ég fékk frá mömmu hennar Hönnuh, ég vil ítreka það að fólk sendir á þessi email: g.petur.matthiasson@vegagerdin.is bergthora.thorkelsdottir@vegagerdin.is“
Zuzanna birtir jafnframt tölvupóst frá Samantha Large þar sem hin syrgjandi móðir segir: „Þessi klettur er núna minningarreitur fyrir fjölskyldu og vini dóttur minnar og önnur fórnarlömb þessa harmleiks. Ég vil áfrýja því að þessi klettur verið felldur. Það eru svo margir aðrir hraunklettar á svæðinu, einn til eða frá skiptir ekki máli.“
Áformin standa
DV hafði samband við G. Pétur Matthíasson, forstöðumann samskiptadeildar Vegagerðarinnar, og staðfesti hann áform um að fjarlægja klettinn. Hann upplýsir að sótt hafi verið um framkvæmdaleyfi til verksins og það hafi verið samþykkt hjá Hafnarfjarðarbæ.
„En við munum ekki gera neitt strax, mér skilst að það verði haldin minnningarathöfn þarna fyrir jólin,“ segir Pétur og staðfestir að kletturinn verði ekki fjarlægður fyrir áramót enda sé Vegagerðin ekki komin með framkvæmdaleyfið í hendur. „Þannig að við munum ekki gera neitt í þessu fyrr en á næsta ári.“
Forsenda ákvörðunarinnar er slysahætta. „Við erum alltaf að fjarlægja hluti sem eru hættulegir í umhverfi vega. Þessi steinn hefur verið álitinn vera það en það eru vandkvæði þar sem um hraun er að ræða því það nýtur sérstakrar verndar,“ segir Pétur. Hann segir veginn flokkast undir svokallaðan „fyrirgefandi veg“. Það felur í sér þá hugsun að umhverfi vega eigi að vera þannig að þó að ökumaður geri mistök þá leiði það ekki til bana eða alvarlegs slyss.
Vegir eigi að vera þannig hannaðir að mistök ökumanna hafi sem minnstar afleiðingar. Ljóst er að Vegagerðin telur umræddan klett valda því að þessi vegarkafli uppfyllir ekki þau skilyrði.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗