Stormur í aðsigi og gul viðvörun um allt land

Gul viðvörun vegna hvassviðris og storms verður á öllu landinu á morgun. Kort/Veðurstofa Íslands

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir allt landið frá síðdegis á morgun fram til föstudagsmorguns.

Spáð er austan- og suðaustan átt, víða 15-23 m/s, með rigningu og vindhviður gætu náð staðbundið yfir 35 m/s.

Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna hvassviðris eða storms um allt land og talsverðrar eða mikillar rigningar á Suðausturlandi og Austfjörðum. 

Þá hefur Veðurstofan gefið út gula skriðuviðvörun fyrir Austfirði. Á Suðaustur- og Austurlandi má búast við talsverðri úrkomu í formi rigningar og má búast við miklum vatnavöxtum í ám og lækjum á svæðinu. 

Auknar líkur eru á skriðuföllum, svo sem skriðum og grjóthruni þar sem mesta úrkoma verður, á meðan veðrið gengur yfir, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar.

Veðurvefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab