Hafa væntingar um aukinn loðnukvóta
Skipstjórar uppsjávarveiðiskipa Síldarvinnslunnar, Beitis og Barkar, telja ekki ósennilegt að bætt verði við loðnukvótann á komandi loðnuvertíð.
Rætt er við þá Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra á Berki og Ólaf Gunnar Guðnason skipstjóra á Beiti á vef SVN.
Þar segja þeir áhuga fyrir því að fara og kanna stöðuna á loðnunni í desember, en engin ákvörðun hafi þó verið tekin um slíkt.
Í þeim efnum réðu veður og fleiri þættir för.
Á vef SVN segir að nú að síldarvertíð lokinni sé hléið fram að loðnuvertíð nýtt til að dytta að uppsjávarveiðiskipunum.
„Börkur NK er í þurrkví hjá Slippnum á Akureyri þar sem skipið er sinkað og botnmálað en einnig er ýmsum öðrum verkefnum sinnt,“ segir þar.
Beitir NK þurfi ekki að fara í slipp en hins vegar sé unnið að viðhaldsverkefnum um borð auk þess sem allt verði þrifið eins og best verður á kosið.
Þriðja uppsjávarveiðiskip Síldarvinnslunnar, Barði NK, hefur verið í Færeyjum þar sem unnið hefur verið að lagfæringum eftir sprengingu og eldsvoða um borð.
„En þess verður ekki langt að bíða að skipið sigli inn Norðfjörð tilbúið að taka þátt í loðnuvertíð sem vonandi verður góð,“ segir í færslu SVN.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗