Aukið eftirlit með drónum og bílar fyrir sérsveitina

Samningarnir voru undirritaðir um borð í varðskipinu Þór að loknum fundi þjóðaröryggisráðs. mbl.is/Eyþór

Auka á eflingu eftirlits með ómönnuðum loftförum og bæta viðbragðsgetu sérsveitar ríkislögreglustjóra með kaupum á sérútbúnum bifreiðum. Samningar vegna þessa voru undirritaðir um borð í varðskipinu Þór í dag.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra, Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslu Íslands og Halla Bergþóra Björnsdóttir ríkislögreglustjóri undirrituðu samningana.

Eru samningarnir sagðir til þess fallnir að efla viðbragðs- og eftirlitsgetu Landhelgisgæslunnar og embættis ríkislögreglustjóra. 

Halla og Georg takast í hendur.

Halla og Georg takast í hendur. mbl.is/Eyþór

Nýjar og vaxandi áskoranir

Samningarnir voru undirritaðir um borð í varðskipinu Þór að loknum fundi þjóðaröryggisráðs. Fundurinn var reglubundinn og var að þessu sinni um borð í varðskipinu í tilefni hundrað ára afmælis Landhelgisgæslunnar. 

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins er haft eftir Þorgerði Katrínu: „Nýjar og vaxandi áskoranir kalla á aukinn viðbúnað og eftirlit. Ráðuneytin eiga nú þegar í nánu og þéttu samstarfi þegar kemur að öryggis- og varnarmálum og það ætlum við nú að styrkja enn frekar.“

„Öflugir borgaralegir innviðir eru lykilatriði í vörnum Íslands. Þessir samningar endurspegla þá samstöðu sem ríkir um að efla öryggi og varnir okkar,“ er jafnframt haft eftir Þorbjörgu. 

Allir kátir.

Allir kátir. mbl.is/Eyþór

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab