Grétar í nýtt starf í Bandaríkjunum
Grétar Rafn Steinsson, fyrrverandi landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu, verður að öllum líkindum yfirmaður knattspyrnumála hjá MLS-félaginu Minnesota United, samkvæmt The Athletic.
Hinn 44 ára gamli Grétar starfaði síðast sem tæknilegur ráðgjafi hjá Leeds United og hefur áður starfað hjá Everton og Tottenham. Sem leikmaður lék hann m.a. með Bolton á Englandi og var fastamaður í íslenska landsliðinu.
Minnesota endaði í 10. sæti Vesturdeildarinnar og komst ekki í úrslitakeppnina.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗