Hagnaðurinn dróst saman um 96%
Félagið rekur samdráttinn til átakanna í Mið-Austurlöndum, sem hafa hækkað verð á flugvélaeldsneyti og haft áhrif á eftirspurn eftir flugi. AFP
Hagnaður breska lággjaldaflugfélagsins easyJet eftir skatta dróst saman um 96% milli ára á fjárhagsárinu sem lauk í september.
Félagið rekur samdráttinn til átakanna í Mið-Austurlöndum, sem hafa hækkað verð á flugvélaeldsneyti og haft áhrif á eftirspurn eftir flugi.
Hagnaður eftir skatta nam 20 milljónum punda, eða um 3,3 milljörðum króna. Tekjur jukust um 6% í 10,7 milljarða punda, eða um 1.754 milljarða króna. Farþegum fjölgaði um 3% og voru 96,4 milljónir.
„Árið var flugfélögum erfitt vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og áhrifa þeirra á eftirspurn og eldsneytisverð. Það hafði veruleg áhrif á afkomu okkar,“ sagði Kenton Jarvis, forstjóri easyJet.
Þetta er síðasta heilsársuppgjör félagsins fyrir fyrirhugaða yfirtöku bandaríska fjárfestingarfélagsins Apollo.
Eldsneytiskostnaður jókst um 11%
Verð á flugvélaeldsneyti hefur hækkað mikið frá því að stríð Bandaríkjanna og Írans hófst. Hækkanirnar hafa komið illa við flugfélög þótt mörg þeirra hafi tryggt sér töluverðar birgðir áður en stríðið hófst, þegar verðið var mun lægra.
Eldsneytiskostnaður easyJet jókst um 11% milli ára, eða um 244 milljónir punda. Það jafngildir um 40 milljörðum króna.
„Þessi hækkun á eldsneytiskostnaði mun augljóslega skapa þrýsting á að hækka fargjöld,“ sagði Jarvis á símafundi um uppgjörið.
EasyJet hefur með verðvörnum fest verð á eldsneyti sem svarar til um 70% af áætlaðri þörf félagsins í vetur og um 54% sumarið 2027. Jarvis sagði verðvarnirnar veita félaginu nokkra vörn gegn hækkunum.
Hluthafar samþykktu yfirtöku Apollo
Hluthafar easyJet samþykktu fyrr í mánuðinum með yfirgnæfandi meirihluta 5,7 milljarða punda yfirtökutilboð Apollo. Fjárhæðin jafngildir um 934 milljörðum króna. Félögin gera ráð fyrir að kaupunum ljúki í byrjun árs 2027, að fengnu samþykki eftirlitsyfirvalda.
Apollo og bandaríska fjárfestingarfélagið Castlelake kepptust um að kaupa easyJet, sem flýgur einkum innan Evrópu. Eignir í stýringu hjá Apollo nema meira en einni billjón Bandaríkjadala á heimsvísu, eða rúmlega 125 þúsund milljörðum króna. Félagið hefur fjárfest í flugfélögunum Aeromexico, Sun Country Airlines og Atlas Air.
Vegna fyrirhugaðrar yfirtöku birti easyJet enga afkomuspá fyrir fjárhagsárið 2027. Jarvis útilokaði ekki að störfum yrði fækkað í höfuðstöðvum easyJet eftir yfirtökuna.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗