Fylgdust með öllum flugferðum Infantino og niðurstöðurnar eru lygilegar
Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, hefur ferðast til 32 landa á innan við fjórum mánuðum og farið í að minnsta kosti 39 ferðir með einkaflugvél.
BBC greinir frá þessu en Infantino hefur á 115 dögum flogið rúmlega 165 þúsund kílómetra og varið tæpum níu sólarhringum í háloftunum.
Forsetakosningar FIFA fara fram í mars á næsta ári og er Infantino sakaður um að nýta sér stöðu sína og fjármuni sambandsins til að afla sér stuðnings fyrir kosningarnar.
Miguel Maduro, fyrrum formaður nefndar um stjórnarhætti FIFA, bendir á að engar reglur séu um fjármögnun kosningabaráttu innan sambandsins. Aðrir frambjóðendur hafi tæpast fjárhagslegt bolmagn til að keppa við Infantino á þessum forsendum.
Þá hefur forsetinn verið harðlega gagnrýndur fyrir umhverfisáhrif ferðalaga sinna. Samkvæmt útreikningum BBC jafngildir losun gróðurhúsalofttegunda vegna flugferðanna árlegri losun 252 einstaklinga að meðaltali.
FIFA ver ferðalög Infantino og segir það meðal skyldustarfa forsetans að rækta tengsl við aðildarsamböndin 211. Öll ferðalög hans séu í samræmi við reglur sambandsins.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗