„Brynja lögreglumannsins gefur sig aðeins“ - Lögreglumaður 0110 um reynslu sína á vettvangi heimilisofbeldis
Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 12:08
Mynd úr safni. Mynd: Unsplash.com.
Heimilisofbeldi
Maður í járnum
kona með áverka
skítug íbúð
tvö börn
11 ára telpa
heldur fjölskyldunni saman
systur sofa á fleti
ekkert sængurver eða lak
Allt í drasli
en á horni kommóðu
eru fjögur naglalökk
snyrtilega raðað
11 ára telpa endurspeglast
í þessu horni
þetta er hennar staður
hennar djásn
Brynja lögreglumannsins
gefur sig aðeins
fegurð í ljótleikanum
það ruglar tilfinningarnar
Það fá ekki allir
sömu forgjöf í lífinu
„Starfa sinna vegna koma lögreglumenn iðulega á vettvang þar sem ofbeldi hefur verið beitt með hörmulegum afleiðingum, en ljóðið hér að framan samdi lögreglumaður 0110 eftir að hafa sinnt mörgum slíkum útköllum í gegnum árin.“
segir í færslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Í dag hefst alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi, en 25. nóvember er alþjóðlegur baráttudagur gegn kynbundnu ofbeldi.
Í ár beinir UN Women á Íslandi sjónum sérstaklega að stafrænu ofbeldi undir yfirskriftinni „Stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi“. Með herferðinni er vakin athygli á stafrænum hatursummælum og einelti og þeim alvarlegu áhrifum sem slíkt ofbeldi getur haft á líðan, heilsu og möguleika fólks til þátttöku í samfélaginu.
Í tilefni átaksins fer árleg ljósaganga UN Women á Íslandi fram kl. 17 í dag. Mæting við styttu Ingólfs Arnarsonar á Arnarhóli kl. 17:00, gengið verður suður Lækjargötu og upp Amtmannsstíg. Göngunni lýkur á Bríetartorgi með stuttri samverustund og kórsöng.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗