Hafna beiðni foreldra Sólons um skýrslutökur

Sólon Guðmundsson féll fyrir eigin hendi 25. ágúst 2024 en þá hafði hann starfað sem flugmaður hjá Icelandair í sex ár. mbl.is/Árni Sæberg

Héraðsdómur Reykjaness hafnaði í dag beiðni Guðmundar Þórðarsonar og Rutar Ólafsdóttur, foreldra Sólons Guðmundssonar, fyrrverandi flugmanns hjá Icelandair, um að tvö vitni yrðu kölluð fyrir dóminn til að skýra hvaða orð féllu um Sólon á fundi skömmu fyrir andlát hans.

Foreldrarnir vildu fá úr því skorið áður en þau tækju ákvörðun um hvort þau höfðuðu meiðyrðamál gegn konunni sem á að hafa látið ummælin falla.

Beiðnin tengist fundi sem fór fram 22. ágúst árið 2024, en Sólon féll fyrir eigin hendi þremur dögum síðar, eða 25. ágúst.

Foreldrarnir vildu leiða í ljós hvað konan hefði sagt þar um meinta ofbeldishegðun Sólons gagnvart samstarfskonum og um að hann væri ógn við öryggi starfsfólks. Á fundinum sátu, auk Sólons og konunnar, forstöðumaður mannauðssviðs Icelandair og geðhjúkrunarfræðingur sem mætti með Sóloni.

Beiðni foreldranna snéri að því að taka skýrslur yfir þeim báðum.

Töldu þörf á að staðfesta orðalagið

Konan mótmælti beiðninni með þeim rökum að foreldrarnir hefðu þegar næg gögn til að ákveða hvort þau höfðuðu mál. Þá ættu skýrslutökur að fara fram við aðalmeðferð þess í staðinn. Foreldrarnir sögðu hins vegar nákvæmt orðalag ummælanna geta ráðið því hvort af málshöfðun yrði.

Héraðsdómur taldi í úrskurði sínum í dag að foreldrarnir ættu lögvarða hagsmuni af málinu, en að þau hefðu þegar nægar upplýsingar til að taka afstöðu til málshöfðunar. Þannig lægi meðal annars skrifleg frásögn geðhjúkrunarfræðingsins af fundinum fyrir.

Forstöðumaður mannauðssviðs hafði jafnframt lýst því yfir að hún myndi ekki nákvæmlega hvaða orð konan hefði notað. Þá hefðu foreldrarnir ekki sýnt fram á að sönnunargögn gætu glatast eða að erfiðara yrði að afla þeirra síðar. Tók dómstóllinn þar með undir með konunni um að skýrslutaka, ef af málshöfðun verður að nýju, ætti að fara fram við aðalmeðferð málsins.

Foreldrunum var með úrskurði héraðsdóms í dag jafnframt gert að greiða konunni 372 þúsund krónur í málskostnað.

Málinu gegn Icelandair vísað frá í maí

Foreldrar Sólons höfðuðu í febrúar meiðyrðamál gegn Icelandair og kröfðust þess að tvenn ummæli sem þau töldu að konan hefði látið falla á sama fundi yrðu dæmd dauð og ómerk. Héraðsdómur Reykjaness féllst á kröfu Icelandair um frávísun. Í júní greindi lögmaður foreldranna svo frá því að þau hygðust afla frekari gagna með skýrslutökum og ætluðu ekki að kæra frávísunina til Landsréttar.
Í tengslum við það sendu þau beiðni til dómstólsins seinni partinn í október varðandi gagnaöflun vegna hugsanlegrar málsóknar, en sem fyrr segir hafnaði dómurinn því að kalla vitnin tvö til skýrslutöku.

Sólon hafði starfað sem flugmaður hjá Icelandair í um sex ár. Hann lést 28 ára að aldri, skömmu eftir að hann lét af störfum hjá félaginu. Foreldrar hans hafa sagt að hann hafi verið knúinn til að segja upp í kjölfar ásakana samstarfskvenna. Icelandair hefur áður sagt að félaginu sé óheimilt að tjá sig um einstök starfsmannamál.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab