Get ekki beðið eftir að koma til Íslands
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við bandaríska bakvörðinn Zion Fruster um að leika með liðinu á yfirstandandi tímabili. Félagið tilkynnti um komu hans í dag.
Fruster er 188 sentímetrar á hæð og lék með Rahoveci í Kósovó í haust, þar sem hann hóf atvinnumannaferil sinn að loknu háskólanámi í Bandaríkjunum.
Hann lék síðustu tvö háskólatímabil sín með Eastern Illinois og var stigahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili með 14,5 stig að meðaltali í leik.
Hann tók einnig 3,2 fráköst og gaf 2,3 stoðsendingar og var valinn í annað úrvalslið Ohio Valley-deildarinnar.
„Ég get ekki beðið eftir að koma til Íslands og spila með liðinu og ég hlakka til að sjá troðfulla stúku!“ sagði Fruster í tilkynningu Tindastóls.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/53/1695347.jpg)