Gæsluvarðhald framlengt í manndrápsmáli

Pólskur karlmaður var drepinn í heimahúsi í Vallargerði á Kársnesi í Kópavogi í ágúst. mbl.is/Birta Margrét Björgvinsdóttir

Tveir pólskir ríkisborgarar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 16. desember í tengslum við manndráp pólsks karlmanns í Vallargerði á Kársnesi í ágúst síðastliðnum.

Þetta staðfestir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, við mbl.is en gæsluvarðhald yfir Pólverjunum átti að renna út á morgun.

Báðir hafa þeir verið í haldi í meira en tólf vikur, en almennt þarf að gefa út ákæru í máli fyrir þann tímafrest ef halda á mönnum í varðhaldi. 

Lögreglan fékk fyrr í þessum mánuði auka 2-3 vikur þar sem mennirnir voru upphaflega handteknir erlendis og segir Elín Agnes að sá tímarammi hafi verið framlengdur.

Að sögn Elínar er rannsókn málsins enn í gangi. Hún sé umfangsmikil og beðið sé eftir frekari gögnum í málinu.

Manndrápið átti sér stað laugardaginn 9. ágúst og voru handtökur hér á landi meðal annars þriðjudaginn 11. ágúst. Þá voru tvímenningarnir handteknir 12. ágúst, en voru í haldi erlendra yfirvalda í nokkurn tíma áður en þeir voru fluttir til landsins.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab