Afbrýðisemi leiddi til átaka við Smáralind - Krafðist þess að fá að hitta nýja kærasta barnsmóður sinnar
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á fyrrverandi eiginkonu sína. Dómurinn taldi að afbrýðisemi ákærða hefði leitt til árásarinnar.
Atvik máls áttu sér stað kvöld eitt í september árið 2024. Tveimur árum áður höfðu ákærði og brotaþoli skilið eftir átta ára hjónaband, en þau deildu áfram forsjá þriggja barna sinna. Brotaþoli var kominn með nýjan kærasta og var ákærði ekki sáttur. Sagði hann í skýrslugjöf hjá lögreglu að þrátt fyrir skilnaðinn hefðu hann og brotaþoli áfram verið að sofa saman. Því hefði hann upplifað það sem framhjáhald þegar hún eignaðist nýjan kærasta og „misst vitið“. Hann ætti erfitt með að sleppa takinu af fyrrverandi konu sinni vegna þráhyggju.
Eins og málsatvikum er lýst í dómi má ráða að ákærði hafi farið að áreita brotaþola og nýja kærasta hennar. Vildi hann ólmur fá að hitta kærastann og tók því illa að vera neitað um það.
Rannsókn málsins hófst þegar ákærði hitti nýja kærastann á bílastæði við Smáralind. Þá kom til átaka og endaði brotaþoli með að hringja í lögreglu og greindi þá frá því að kvöldið áður hefði ákærði ráðist á hana fyrir utan heimili hennar eftir að hún neitaði að koma með honum til fundar við nýja kærastann. Hann greip því utan um hana, felldi hana í jörðina og sagði henni að hringja og biðja nýja kærastann um að bjarga sér. Því næst þvingaði hann hana inn í aftursæti bíls síns. Konunni tókst að komast undan en hann elti hana uppi og felldi aftur. Af árásinni hlaut konan tvo hringlaga marbletti ofarlega á rasskinnum hvor sínum megin, marblett á hægri fótlegg og röð marbletta á hægri kálfa.
Ákærði var handtekinn kvöldið eftir eftir átökin við Smáralindina. Var hann ölvaður og var látinn sofa úr sér í fangaklefa áður en skýrsla var tekin af honum.
Þegar málið kom fyrir dóm kannaðist ákærði þó ekkert við framburð sinn hjá lögreglu. Hann sagðist hafa verið frá sér af hræðslu og því játað hvað sem er til að sleppa út. Sannleikurinn væri að hann og brotaþoli hefðu aðeins rifist þennan dag.
Brotaþoli kom fyrir dóm og var ósátt við að ákæra hefði verið gefin út. Hún hafi rætt við lögreglu í þeirri trú að það ætti að skrá málið og nýta það ef ákærði gerði eitthvað meira. Ef ekki væri málið bara gleymt. Hún lýsti ákærða sem góðum föður og vildi ekki búa til vandræði við hann. Þau hefðu ekki hist síðan hann var handtekinn og ættu í samskiptum í gegnum tölvupóst vegna barnanna. Hún sagði erfitt að rifja málið upp og vildi ekki tala um það meira.
Dómari rakti að saksókn vegna líkamsárásar er ekki háð kröfu þess sem misgert er við og því hefði afstaða brotaþola til ákærðu ekki áhrif við úrlausn máls. Dómurinn taldi sannað að ákærði hefði ráðist á barnsmóður sína enda fengi framburður hennar stoð í ljósmyndum og læknisvottorði um áverka hennar. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að afbrýðisemi átti þarna stóran hlut að málinu. Árásin hefði verið gróf, beinst að fyrrverandi eiginkonu og barnsmóður ákærða og valdið henni töluverðu líkamstjóni og vanlíðan.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗