Segir allt að 200 milljónir vanta í reikninginn

Helgi segist hafa gert alvarlegar athugasemdir við vinnubrögðin innan Veðurstofunnar á sínum tíma og í kjölfarið sent minnisblað til ráðuneytisins, án árangurs. Samsett mynd/Aðsend/Skjáskot

Kostnaður við nýjan vef Veðurstofu Íslands er að öllum líkindum umtalsvert meiri en þær 460 milljónir króna sem gefnar hafa verið upp. Þetta segir Helgi Borg, sem hafði umsjón með gerð eldri vefs Veðurstofunnar og starfaði um árabil sem verktaki hjá stofnuninni.

Hann telur að bæta megi 100 til 200 milljónum króna við uppgefinn kostnað vegna vinnu sem farið hafði fram innan stofnunarinnar áður en verkefnið var sett í útboð.

Helgi gerir einnig athugasemdir við umfang útboðsgagnanna vegna hins nýja vefs. Hann bendir á að ítarleg kröfugreining upp á 95 blaðsíður hafi legið til grundvallar gerð eldri vefsins.

Útboðslýsing vegna þess nýja hafi einungis verið nokkrar blaðsíður.

Nýi vefurinn hefur hlotið töluverða gagnrýni og nokkrir hafa þegar tekið sig til og sett upp eigin veðurvefi, sem hafa fengið jákvæð viðbrögð og þykja jafnvel aðgengilegri en nýr vefur Veðurstofunnar.

Bætast þeir í hóp annarra veðurvefja sem haldið hefur verið úti um árabil og notið vinsælda fyrir nákvæmar spár.

Átti að kosta 190 milljónir árið 2024

Mikill kostnaður við gerð vefsins hefur einnig vakið athygli.

Í því samhengi má rifja upp að í svari Veðurstofunnar við fyrirspurn Morgunblaðsins, í febrúar árið 2024, sagði að hönnun og smíði á nýjum vef kæmi til með að kosta 190 milljónir króna þegar upp væri staðið.

Við það myndu bætast 20 til 30 milljónir króna á ári í rekstur og þróun kerfa tengdra vefnum.

Tvö ár voru þá liðin frá því gerð vefsins var boðin út. Eftir komandi áramót verða fimm ár liðin.

Eldri vefur alvarlega úreltur árið 2012

Að mati Helga var gamli vefur Veðurstofunnar orðinn alvarlega úreltur árið 2012, enda var hann hannaður áður en snjallsímar komu til sögunnar. Hann útbjó tillögur um hvernig væri hægt að þróa vefinn áfram í litlum skrefum en þeim var hafnað það ár.

Hann segist hafa gert alvarlegar athugasemdir við vinnubrögðin innan Veðurstofunnar á sínum tíma og í kjölfarið sent ráðuneytinu minnisblað, án árangurs.

„Mér fannst mjög illa að þessu staðið og þetta mjög kostnaðarsamt og fagmennskan ekki í fyrirrúmi,“ segir Helgi í samtali við mbl.is.

Eldri vefur Veðurstofunnar var tekinn í notkun í júní árið 2007 og hlaut góðar viðtökur, að sögn Helga. Hann hafði meðal annars umsjón með verkefnastjórnun, þarfagreiningu, viðmótshönnun og útfærslu einstakra eininga vefsins.

Hann segir mikla áherslu hafa verið lagða á prófanir og að fá álit fjölbreytts hóps notenda áður en vefurinn var opnaður.

„Við vorum búin að undirbúa þetta mjög vel, hafa hann í lokuðum prófunum og fá fullt af fólki til þess að prófa hann. Svo var þetta allt saman lagað og þegar hann opnaði þá var bara fögnuður. En það er ekki tilfellið núna.“

Horfið frá vinnu sem var langt komin 

Helgi fékk árið 2016 vilyrði fyrir því að vinna áfram að endurnýjun vefsins. Hann segist hins vegar hafa unnið að verkefninu einn og fengið litla sem enga aðstoð innan stofnunarinnar.

Engu að síður hafi vinnan verið langt komin rétt fyrir kórónuveirufaraldurinn.

„Hann var langt kominn og farinn að virka og að auki var ég búinn að gera þjónustu þannig að þar var í raun og veru hægt að sjá spár fyrir á hvaða stað sem er.“

Helgi áætlar að kostnaður við hans vinnu hafi þá numið um 50 milljónum króna. Helstu kort hafi þá verið nær tilbúin þótt enn ætti eftir að koma upp vefumhverfi og sinna einhverjum fleiri þáttum verkefnisins.

Með tilkomu nýs yfirmanns hafi aftur á móti verið ákveðið að hverfa frá þeirri vinnu og setja verkefnið í útboð. Origo tók síðar við verkefninu.

Útboðsaðferðin skrýtin

Helgi gagnrýnir einnig hvernig staðið var að útboðinu og telur að með þeim kröfum sem gerðar voru til bjóðenda hafi í raun verið komið í veg fyrir að sprotafyrirtæki gætu tekið þátt.

Meðal annars hafi verið gerð krafa um að fyrirtækið sem tæki verkið að sér hefði áður komið að sambærilegum verkefnum.

Helgi segist sjálfur hafa haft áhuga á að setja saman sprotafyrirtæki til að taka þátt í útboðinu en að skilyrðin hafi komið í veg fyrir það.

Hann telur þetta endurspegla stærra vandamál innan stofnunarinnar og nefnir í því samhengi að Veðurstofan hafi að hans mati ekki nýtt nægilega vel tækifæri til samstarfs við íslensk nýsköpunarfyrirtæki.

Helgi sá um kröfugreiningu fyrir eldri vef Veðurstofunnar og segir hana hafa verið samtals 95 síður. Þannig hafi gamli vefurinn byggt á ítarlegum og góðum undirbúningi. Hann segir að ef hann hefði skrifað útboðslýsingu hefði hún orðið miklu lengri.

Útboðsgögn fyrir nýja vefinn hafi hins vegar aðeins verið nokkrar síður, þar sem sáralítið hafi verið fjallað um veðurhluta vefsins og enn minna um snjóflóð, jarðskjálfta og vatnavá.

„Þeir gefa það bara út að þeir hafi í raun og veru verið að leita að samstarfsaðila. Það er svolítið skrýtin útboðsaðferð að mínu mati fyrir þetta verkefni,“ segir Helgi.

Segir illa farið með fé 

Hann telur jafnframt að ekki hafi verið lögð nægileg áhersla á notendaprófanir og að kanna hversu þjáll og aðgengilegur nýi vefurinn væri í notkun.

Spurður hvað honum finnist helst ábótavant við vefinn segir Helgi:

„Maður er miklu fljótari að telja upp það sem er í lagi.“

Hann setur einnig spurningarmerki við þann tíma sem tekið hefur að koma nýja vefnum í loftið í ljósi þess fjölda starfsmanna sem komið hefur að verkefninu, bæði hjá Veðurstofunni og Origo.

Sjálfur hafi hann á sínum tíma sinnt stórum hluta vinnunnar við eldri vefinn einn, á um einu og hálfu ári.

„Ég bara skil ekki hvernig hægt er að fara svona illa með fé.“

Gagnrýnir ráðherra

Helgi telur gagnrýnina á nýjan vef Veðurstofunnar aðeins vera einn anga af mun stærra vandamáli. Það snúi meðal annars að gæðum veðurspáa og því hvernig stofnunin nýti nýjustu tækni og þekkingu.

Í því samhengi bendir hann á nýtt spálíkan veðurvefsins Bliku, sem Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kynnti á dögunum, og byggir meðal annars á gervigreind.

Þá kveðst Helgi áður hafa séð gögn sem sýni fram á að veðurspár Belgings hafi í tilteknum tilvikum verið áreiðanlegri en spár Veðurstofunnar.

Helgi gagnrýnir Jóhann Pál Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir að hafa að hans mati ekki beitt sér nægilega í málefnum stofnunarinnar.

Veðurstofan illa rekin

Hann bendir á að ríkisstjórnin hafi við upphaf kjörtímabilsins boðað bæði aðhald í opinberum rekstri og aukna áherslu á nýsköpun. Að hans mati séu mikil tækifæri til úrbóta hjá Veðurstofunni á báðum þessum sviðum.

„Heildarpunkturinn að mínu mati er sá að Veðurstofan er einfaldlega illa rekin og það er mjög bagalegt að ráðherrar skuli ekki sjá sér fært að beita sér til þess að bæta reksturinn og bæta þjónustuna.“

Hann segir mikilvægt að horfa ekki eingöngu til útgjalda stofnunarinnar heldur einnig þeirra hagsmuna sem almenningur og atvinnulífið hafi af því að fá sem áreiðanlegastar veðurspár.

Samfélagslegur kostnaður vegna ófullnægjandi veðurspáa geti að hans mati verið mun meiri en þær fjárhæðir sem nú séu til umræðu vegna nýja vefsins.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab