Freyr fær kaldar kveðjur
Inge Braa, formaður stuðningsmannahóps Rosenborg, Kjernen, gagnrýndi knattspyrnuþjálfarann Frey Alexandersson vegna viðræðna hans við Swansea, aðeins fimm mánuðum eftir að hann tók við liðinu.
„Það eru gríðarleg vonbrigði að hafa þjálfara hjá RBK sem daðrar opinskátt við önnur félög,“ sagði Braa í samtali við Nettavisen.
„Það virðist sem hann hafi gert upp hug sinn og að við þurfum enn á ný að leita að þjálfara.“
Braa setti spurningarmerki við tímasetninguna fyrir mikilvægan leik Rosenborg gegn Molde í baráttunni um Evrópusæti.
„Við erum nú ekki beint að tala um Barcelona, heldur miðlungslið í ensku B-deildinni,“ bætti hann við.
Hann efaðist einnig um að Freyr gæti endurheimt traust leikmannanna ef hann yrði áfram.
„Ég veit ekki hvernig hann ætlar að selja leikmannahópnum þetta þegar hann vill vera annars staðar og hefur farið í atvinnuviðtal.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗