Útrásin byrjaði í Suður-Kóreu
„Maður þarf að passa sig á að vera ekki of djarfur í yfirlýsingunum svo fólk haldi ekki að maður sé galinn,“ segir Magnús Már Þórðarson framkvæmdastjóri Tern en fyrirtækið er í dag með viðskiptavini víða um heim. „Við höfum þegar náð frábærum árangri og stefnum á að verða leiðandi í heiminum.“
Tern var í sumar valið til að leiða evrópskt risaverkefni sem snýst um að þróa næstu kynslóð flugumferðarstjórnunarkerfa og fékk til þess nærri þriggja milljarða króna styrk. Þar af fer nærri helmingur til félagsins en afgangurinn deilist á 17 samstarfsaðila.
Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗