Vill samræma netöryggiseftirlit eftir misjafna framkvæmd

Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir að Fjarskiptastofa, netöryggissveitin CERT-IS og embætti ríkislögreglustjóra skipi hvert tvo fulltrúa í netöryggisráð. Ljósmynd/Colourbox

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra leggur til að Fjarskiptastofa taki við eftirliti með netöryggi rekstraraðila sem veita nauðsynlega þjónustu á sviði heilbrigðismála, flutninga og orku-, hita- og vatnsveitna.

Eftirlitsverkefnin færðust til stofnunarinnar frá embætti landlæknis, Samgöngustofu og Umhverfis- og orkustofnun. 

Eyjólfur mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær og var því vísað til umhverfis- og samgöngunefndar. Verði það að lögum taka breytingarnar gildi 1. janúar 2027.

Misjafnlega hefur gengið að framfylgja lögunum

Í greinargerð kemur fram að samkvæmt mati Fjarskiptastofu og annarra eftirlitsstjórnvalda árið 2025 skorti talsverðan fjölda mikilvægra innviða fullnægjandi stjórnunarkerfi fyrir net- og upplýsingaöryggi.

Misjafnlega hafi gengið að framfylgja lögunum og erfitt hafi verið að manna og fjármagna eftirlitið. Fjarskiptastofa hafi þegar byggt upp sérþekkingu og mótað aðferðir við áhættumiðað eftirlit sem nýta megi á fleiri sviðum.

Fjarskiptastofa, embætti landlæknis, Samgöngustofa, Umhverfis- og orkustofnun og Seðlabanki Íslands myndu áfram ákveða, hvert á sínu sviði, hvaða aðilar teljast veita nauðsynlega þjónustu.

Fjarskiptastofa héldi utan um sameiginlega skrá yfir þá og skylda til að birta skrána í Stjórnartíðindum félli brott. Fjármálaeftirlit Seðlabankans hefði áfram eftirlit með netöryggi banka og innviða fjármálamarkaðar samkvæmt sérlögum. 

Eyjólfur mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær og var því vísað til umhverfis- og samgöngunefndar. mbl.is/Karítas

Viðbótarfé þarf til lengri tíma

Hvorki er gert ráð fyrir auknum útgjöldum ríkissjóðs né tilfærslu fjármagns milli stofnana. Í greinargerðinni segir að Fjarskiptastofa geti aðeins sinnt auknum eftirlitsverkefnum með fullnægjandi hætti í skamman tíma án viðbótarfjár.

Til stendur að endurskoða fjármögnun eftirlitsins við innleiðingu NIS2, netöryggistilskipunar Evrópusambandsins, sem áformuð er á árinu 2027.

Netöryggisráð fái breytt hlutverk

Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir að Fjarskiptastofa, netöryggissveitin CERT-IS og embætti ríkislögreglustjóra skipi hvert tvo fulltrúa í netöryggisráð. Þar skiptust aðilarnir á upplýsingum um netöryggisógnir og hefðu samstarf um forvarnir og viðbrögð.

Ráðinu bæri að upplýsa ráðherra að minnsta kosti árlega um helstu ógnir og áskoranir. Gögn og upplýsingar sem lögð eru fram, rædd eða miðlað á vegum ráðsins yrðu undanþegin upplýsingalögum. 

Fjallað er um málið á vef Stjórnarráðsins.

内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab