Reglur um Bretland verða eins og um ESB
Fiski landað. Fiskistofa vekur athygli á því að reglur um útflutning til Bretlands breytist á morgun. mbl.is/Þorgeir
Á morgun taka gildi breyttar kröfur til veiðivottorða fyrir fisk og fiskafurðir sem fluttar eru til Bretlands.
Á vef Fiskistofu kemur fram að breytingarnar séu sambærilegar þeim sem tóku gildi í byrjun árs vegna flutnings sjávarafurða til Evrópusambandsins og íslenskir útflytjendur vinna þegar eftir.
Helstu breytingar eru sagðar að við útgáfu veiðivottorða fyrir útflutning til Bretlands eigi útflytjendur að velja EU/EES/GB í veiðivottorðakerfinu og að fyrir unnar fiskafurðir þurfi nú bæði veiði- og vinnsluvottorð.
Frekari útlistun á breytingunum er að finna í færslu Fiskistofu.
„Útflytjendur eru hvattir til að kynna sér breytingarnar og tryggja að rétt vottorð fylgi hverri sendingu,“ segir þar.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗