Miklu meira en myndlistarkennari
"Þá er það athyglisvert að Valgerður skuli gera heimilið að viðfangsefni myndlistar sinnar í ljósi væntinga samfélagsins til kvenna á þessum tíma." Ljósmynd/Gerðarsafn
Valgerður Briem var 66 ára þegar hún fyrst sýndi verk sín opinberlega. Þá hafði hún þegar haft áhrif á kynslóðir nemenda en hún þótti öflugur myndlistarkennari auk þess sem hún skrifaði mikið um mikilvægi myndlistarmenntunar barna.
Valgerður lést árið 2002 og fjórum árum síðar færðu afkomendur hennar Gerðarsafni 1.640 verk að gjöf sem teljast til meginstoðar safneignarinnar. Þá hlaut Gerðarsafn tveggja ára rannsóknarstyrk frá Safnasjóði til frumrannsóknar á ævistarfi Valgerðar Briem sem leidd var af Cecilie Gaihede, í kjölfarið er komin út vegleg bók, Myndvit: arfleifð Valgerðar Briem sem Cecilie ritstýrir og svo sýningin Valgerður þar sem listakona fær nú loks að taka sér pláss. Á sýningunni fáum við að sjá fjölmörg ólík verk og skissur sem hún vann á pappír auk þess sem ferill hennar og listsköpun eru sett í samhengi við verk annarra listamanna sem hún kynntist og hafði áhrif á eins og til dæmis Birgi Andrésson, Kristínu Jónsdóttur frá Munkaþverá og Erró.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗