Ása Berglind harmar heimsendingar ÁTVR - „Ég er bara mjög ósátt við þetta“
Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 11:30
Ása Berglind þingkona Samfylkingar segist verulega ósátt við heimsendingar ÁTVR sem tilkynntar voru í vikunni.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingkona Samfylkingar, segir það galið að ÁTVR sé byrjað að senda áfengi heim að húsi til fólks. Með þessu sé verið að auka aðgengi að áfengi.
Ása Berglind var til svara í þættinum Bítinu á Bylgjunni í innslagi sem kallast „Þingmaður og svarið er?“ en þar mega hlustendur hringja inn og spyrja þingmenn út í málefni líðandi stundar. Ein kona hringdi inn og sagði ástandið bagalegt í forvörnum gegn áfengi, reykingum, veipi og fleiru. Þingkonan tók undir þetta.
„Ef ég má vera alveg hreinskilin þá finnst mér alveg galið að Vínbúðin sé núna búin að opna aukið aðgengi að vínsölu með heimsendingum,“ sagði Ása Berglind. „Ég er bara mjög ósátt við þetta.“
Þurfi að skerpa á lögum
Eins og greint var frá á mánudaginn býður ÁTVR nú upp á heimsendingar á áfengi. Fara þær fram í gegnum þjónustu Póstsins og greiða viðskiptavinir fyrir þjónustuna samkvæmt gjaldskrá. Heimsendingar eru ekki afgreiddar samdægurs heldur er afhendingartími að jafnaði einn til þrír dagar.
Aðspurð um hvort hún vildi þrengja aðgengi að áfengi sagði Ása Berglind svo ekki endilega vera en að minnsta kosti ekki auka það.
„Mér finnst fínt fyrirkomulagið eins og það hefur verið hérna og mér finnst vont þetta limbó sem hefur verið í gangi varðandi netsölur á áfengi. Mér finnst við þurfa að skerpa á þessum lögum og mín afstaða er sú að við eigum ekki að auka aðgengi að þessu. Mér finnst við bara ekkert of góð, sem höfum aldur til að fara í Vínbúðina, að gera það og hjálpa þannig fólki að halda sig frá þessu sem þarf að fara í verslanir til að kaupa sér mat. Það er óþarfi að þau séu með vín þar fyrir framan sig þegar þau eru að reyna að standast þá freistingu.“
Forvarnirnar skiluðu árangri
Þá sagðist þingkonan einnig sammála innhringjandanum um að forvarnir þyrftu að vera miklu sýnilegri, eins og áður var til dæmis í skólum.
„Ég man mjög vel eftir öllum þessum heimsóknum í grunnskóla og þær höfðu áhrif,“ segir Ása Berglind. „Ég man ljóslifandi eftir þeim sem komu til þess að ræða þessi mál opinskátt við okkur. Ég held að við höfum kannski aðeins sofnað á verðinum því við stóðum okkur ótrúlega vel í forvörnum sem skilaði miklum árangri.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗