Myndband: Viðtal við Haaland vekur gríðarlega athygli og veldur mörgum áhyggjum - Mjög ólíkur sér

Erling Haaland átti erfitt með að leyna vonbrigðum sínum eftir 2-2 jafntefli Manchester City við Napoli í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi.

City hefur átt í miklum vandræðum undanfarið og virðist norski framherjinn eiga erfitt með að átta sig á hvað sé að hjá liðinu.

„Ég hef ekki hugmynd um hvað vantaði,“ sagði Haaland en bætti við að greinilegt væri að eitthvað hefði ekki verið að smella hjá liðinu í síðustu leikjum.

I've never seen Haaland looking this flat. Not even close to it. https://t.co/ZD0uJqkiW0

— HLTCO (@HLTCO) November 25, 2026

Haaland bar fyrirliðabandið í gær en kveðst finna fyrir mikilli ábyrgð óháð því hvort hann sé fyrirliði liðsins eða ekki. Hann segir það sært sig að ná ekki að hjálpa City til sigurs.

Margir stuðningsmenn City lýstu yfir áhyggjum af framkomu Haaland í viðtalinu á samfélagsmiðlum og höfðu á orði að Norðmaðurinn virtist gjörsamlega niðurbrotinn.

Þetta kemur auðvitað í skugga háværra sögusagna um að City fái þunga refsingu vegna brota sinna á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Talað hefur verið um að liðið gæti verið dæmt niður um deild eða deildir. 

City sækir Englandsmeistara Arsenal heim á sunnudag, en viðtalið við Haaland er hér ofar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab