„Stjórnin var sett í ómögulega stöðu“
Stjórn Nvidia sætti gagnrýni fyrir fyrstu viðbrögð sín við málinu sem leiddi til afsagnar Jensens Huangs forstjóra. Hún greip í kjölfarið til aðgerða sem tíðkast í bandarískum fyrirtækjum við slíkar aðstæður.
Stjórnin fól lögmannsstofu sem sérhæfir sig í efnahagsbrotamálum að gera „ítarlega og óháða“ rannsókn, setti á fót nefnd innan stjórnarinnar um þjóðaröryggismál og kvaðst ekki ætla að ráða Huang aftur.
Á mánudag sneri stjórnin við blaðinu og réð Huang aftur sem forstjóra. Ákvörðunin sætti víðtækri gagnrýni, kallað var eftir afsögn stjórnarmanna og á ný vöknuðu spurningar um stjórnarhætti bandarískra fyrirtækja.
Viðsnúningurinn kom í kjölfar óvenjulegra afskipta Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Samkvæmt fréttum fjölmiðla vestra hringdi Trump inn á fund stjórnarinnar og þrýsti á um að Huang, stofnandi Nvidia, yrði ráðinn aftur þrátt fyrir að hann hefði átt í ástarsambandi við konu sem grunuð er um að njósna fyrir Kína.
Stjórnum fyrirtækja ber að vega og meta þarfir rekstrarins til skemmri og lengri tíma, eiga samskipti við hluthafa og aðra hagsmunaaðila og draga úr hættu á að félögin verði látin bera lagalega ábyrgð. AFP
Segir stjórnina hafa verið í ómögulegri stöðu
Sérfræðingar í stjórnarháttum segja að stjórn Nvidia hafi brugðist ófullnægjandi við þótt hún hafi verið í afar erfiðri stöðu.
„Stjórnin var sett í ómögulega stöðu,“ sagði Fred Ashton, forstöðumaður samkeppnismála hjá American Action Forum. „Hvíta húsið hefði getað gert henni afar erfitt fyrir ef hún hefði ekki ráðið Jensen Huang aftur.“
Ashton telur engu að síður að stjórnarmenn eigi að segja af sér. Rannsóknin sem stjórnin lét hefja sé skammt á veg komin og Huang hafi enn ekki verið hreinsaður af grunsemdum. Bandarísk stjórnvöld og Bandaríkjaþing rannsaka einnig mál hans.
„Ég veit ekki hvernig hægt er að reka fyrirtæki með svo lítinn trúverðugleika,“ sagði Ashton. Hann telur að afskipti Hvíta hússins geti á endanum veikt stöðu Bandaríkjanna á sviði gervigreindar.
Nvidia sé í forystu um þessar mundir en Ashton bendir á að staða fyrirtækja í greininni geti breyst. OpenAI hafi áður verið leiðandi en mæti nú harðri samkeppni frá Google og Anthropic.
Samkvæmt fréttum fjölmiðla vestra hringdi Trump inn á fund stjórnarinnar og þrýsti á um að Huang, stofnandi Nvidia, yrði ráðinn aftur þrátt fyrir að hann hefði átt í ástarsambandi við konu sem grunuð er um að njósna fyrir Kína. AFP
Hópmál þegar höfðað gegn Nvidia
Stjórnum fyrirtækja ber að vega og meta þarfir rekstrarins til skemmri og lengri tíma, eiga samskipti við hluthafa og aðra hagsmunaaðila og draga úr hættu á að félögin verði látin bera lagalega ábyrgð.
Í tilkynningu Nvidia um endurráðningu Huangs sagði að háttsettir fulltrúar bandarískra stjórnvalda hefðu komið sjónarmiðum sínum á framfæri við stjórnina. Á þeim grundvelli teldi stjórnin að endurkoma Huangs hefði enga áhættu í för með sér fyrir þjóðaröryggi.
Orðalagið endurspeglar fullvissu sem stjórn Trumps hefur veitt vegna endurkomu Huangs. Stjórn Nvidia vonast til þess að hún veiti sér skjól meðan rannsóknir stjórnvalda standa yfir. Eric Talley, lagaprófessor við Columbia-háskóla og sérfræðingur í stjórnarháttum, segir að jafnvel þótt stjórnvöld standi við fyrirheit sín geti hluthafar höfðað mál ef rannsóknirnar leiða í ljós upplýsingar sem skaða rekstur Nvidia.
Lögmenn stefnenda hafa þegar höfðað hópmál gegn Nvidia og Talley býst við fleiri málshöfðunum. Hann segir fullvissu Hvíta hússins ekki veita stjórninni „frípassa“. Erfitt sé að færa sönnur á kröfur í slíkum málum en þau geti haft umtalsverðar fjárhagslegar afleiðingar.
Talley telur að sumar viðteknar reglur um stjórnarhætti verði lagðar til hliðar um sinn. Fyrirtæki geti brugðist við með því að taka meira tillit til stjórnmálamanna við ákvarðanatöku. Pólitísk áhætta vegi þungt í rekstri fyrirtækja, segir hann.
Telur Nvidia-málið undantekningu
Lawrence Cunningham, forstöðumaður Weinberg-miðstöðvarinnar um stjórnarhætti fyrirtækja við Delaware-háskóla, telur Nvidia-málið vera undantekningu. Stjórnarhættir flestra bandarískra fyrirtækja standi traustum fótum. Flest þeirra hafi til dæmis skýrar áætlanir um hvernig taka skuli við af forstjóra ef skipta þarf um hann fyrirvaralaust.
Cunningham sagði að það sem hann kallaði „spillingu“ Trumps hefði vegið þyngst í Nvidia-málinu. Trump hefði einnig beitt pólitísku valdi gagnvart öðrum stofnunum með hætti sem áður hefði þótt óhugsandi.
„Pólitísk áhætta innanlands er ný af nálinni fyrir fyrirtæki. Hún snertir líka háskóla, sjúkrahús og margar aðrar stofnanir í bandarísku samfélagi,“ sagði hann.
„Engin fyrirmynd er að því hvernig eigi að bregðast við þessu því spilling af þessari stærðargráðu á sér engin fordæmi í nútímasögu Bandaríkjanna,“ sagði Cunningham.
„En ég held að kjósendur hafi sagt sitt,“ bætti hann við og vísaði til nýafstaðinna miðkjörtímabilskosninga í Bandaríkjunum þar sem Repúblikanaflokkur Trumps beið mikinn ósigur.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

