Nýnasisti tók að sér drápsverkefni

Nýnasisti tók að sér leigudráp fyrir annan arm sænsks gengis sem klofnaði fyrir nokkrum árum vegna misklíðar. Myndin er af lögreglu í Gautaborg við störf. AFP/TT/Adam Ihse

Tvítugur karlmaður frá Värmland í Svíþjóð var handtekinn í Södertälje í ágúst í fyrra og hlaut nú í liðinni viku átta ára dóm fyrir áfrýjunardómstólnum Svea hovrätt þar sem honum var gefið að sök að leggja á ráðin um manndráp auk þess að gerast brotlegur við skotvopnalöggjöf.

Við handtökuna í fyrra reyndist maðurinn vera með skotvopn á sér og hafa þær áætlanir á prjónunum að myrða nokkra innflytjendur gegn greiðslu frá annarri tveggja fylkinga Södertälje-glæpagengisins sem þá hafði klofnað í tvennt vegna innbyrðis átaka sem loguðu hve skæðast árið 2022, en blossuðu upp á ný sumarið 2024.

Um hægðist svo í fyrra, að minnsta kosti á yfirborðinu, og greindi lögreglan í Södertälje frá því við sænska ríkisútvarpið SVT að hún hefði hindrað nokkur alvarleg ofbeldisbrot með forvarnastarfi sínu.

Bjó á meðferðarheimili

Væringar gengja eru gömul saga og ný síðustu ár í Svíþjóð og fjölmiðlar þar fjalla um dóminn. Tímaritið Expo kafar þó dýpra og segir ítarlegar frá. Dæmdi reynist vera nýnasisti sem er nokkuð nýstárleg staða meðal leigudrápsmanna sænsku glæpagengjanna.

„Hann skrifar á spjallrás nasista að hann ætli að gera þjóð sinni greiða,“ skrifar Jonathan Leman blaðamaður Expo í umfjöllun ritsins sem auk þess greinir frá því í umfjölluninni að hann hafi fengið það verkefni að skjóta nokkra óþekkta einstaklinga í öðrum hvorum armi klíkunnar til bana.

Á þeim tíma sem maðurinn var fenginn til verkanna bjó hann á meðferðar- og stuðningsheimili sænska ríkisins í Uppland, einu hinna svokölluðu HVB-heimila.

Lögreglu er ókunnugt um hver fékk dæmda til verksins, en dómur hvors tveggja, héraðsdóms og hofréttar, var átta ár og segir héraðsdómur í dómsforsendum sínum að ákærða hafi verið metið það til refsiþyngingar að hafa ætlað sér að ráðast gegn fólki vegna þjóðernisuppruna þess eða húðlitar.

Expo (krefst áskriftar)

SVT

Länstidningen Södertälje (krefst áskriftar)

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab