Spilaði GTA í 40 tíma og vann svo keppnina

Max Verstappen fagnar sigri sínum í Las Vegas.

Max Verstappen fagnar sigri sínum í Las Vegas. AFP/Jim Watson

Max Verstappen, ökumaður Red Bull í Formúlu 1, greindi frá því að hann hefði eytt meira en 40 klukkustundum í að spila GTA 4 um helgina sem kappaksturinn í Las Vegas fór fram. Verstappen vann keppnina.

„Ég spilaði mikið á kvöldin og á morgnana í Vegas, 40 tíma,“ sagði hann í beinu streymi eftir keppnina. Leikurinn kom út 19. nóvember, einmitt þegar keppnishelgin hófst.

Verstappen ræsti fremstur og vann sinn þriðja sigur í Las Vegas og fjórða sigur tímabilsins.

Lewis Hamilton tók einnig PlayStation-tölvuna sína með til að spila leikinn. „Ég er eins og stórt barn,“ sagði hann á fjölmiðlafundi.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab