Færeyjar og Grænland semja um veiðar
Katrine Kærgaard, formaður samninganefndar Grænlands, og Janet Skarðsá, formaður samninganefndar Færeyja. Ljósmynd/Utanríkis- og fiskveiðiráðuneyti Færeyja
Færeyjar og Grænland hafa komist að samkomulagi um fiskveiðar á næsta ári.
Viðræður fóru fram í Þórshöfn 23. og 24. þessa mánaðar, að því er fram kemur í tilkynningu utanríkis- og sjávarútvegsráðuneytis Færeyja.
Hagstæð verðþróun á uppsjávarfiski, auk hækkunar á leyfilegum heildarafla kolmunna, gerði kleift að auka veiðiheimildir færeyskra skipa í grænlenskri lögsögu.
„Þorskkvótinn eykst um 225 tonn og grálúðukvótinn við Austur-Grænland eykst um 75 tonn. Aðrar veiðiheimildir færeyskra skipa eru óbreyttar frá árinu 2026,“ segir í tilkynningunni.
Niðurstaðan er því að færeysk skip geta árið 2027 veitt samtals 2.575 tonn af þorski í grænlenskri lögsögu, auk 25 tonna af lúðu sem meðafla, en keilukvótinn verður 175 tonn.
Veiðiheimildir Færeyinga í grálúðu í grænlenskri lögsögu verða 350 tonn við Austur-Grænland og 100 tonn við Vestur-Grænland.
Þá segir að veiðiheimildir Grænlendinga í færeyskri lögsögu árið 2027 verði 22.400 tonn af kolmunna og 3.300 tonn af norsk-íslenskri síld.
„Kolmunnakvótinn eykst því um 2.000 tonn frá árinu 2026 en kvóti í norsk-íslenskri síld minnkar um 1.600 tonn.“
Þá fái Grænland jafnframt heimild til að veiða í færeyskri lögsögu þann kolmunnakvóta sem Grænlandi er úthlutað á alþjóðlegu hafsvæði á stjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), en hann nemur 5.747 tonnum árið 2027.
„Fiskveiðisamningurinn við Grænland hefur mikla þýðingu fyrir færeysk skip og ég fagna því að tekist hafi að auka veiðimöguleika færeyskra skipa í grænlenskri lögsögu árið 2027,“ er haft eftir Bárði á Steig Nielsen, utanríkis- og sjávarútvegsráðherra Færeyja.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
