Sveinki uppgötvar hvernig jólin eru - Sannkallað jólakraftaverk þegar skeggið fer af
Í jólaauglýsingu bresku verslunarkeðjunnar Marks og Spencer hvetur eiginkona jólasveinsins, leikin af Lucy Punch, eiginmann sinn til að raka af sér skeggið, leggja rauða búninginn til hliðar og halda út í heim til að uppgötva hvernig jólin eru í raun og veru.
Og þegar skeggið fýkur af kemur James Norton í ljós. Sannkallað jólakraftaverk!
„Ég var að átta mig á einu, ég hef aldrei upplifað jólin. Svo ég fékk hugmynd, mig langar til að upplifa hvernig jólin eru þarna úti. Það mun enginn þekkja mig,“ segir sveinki og eiginkonan tekur undir að enginn muni þekkja hann.
Hinn nýrakaði jólasveinn heldur af stað til að upplifa jólastemninguna, fer á jólatónleika, gæðir sér á dásamlegum veitingum frá M&S eru, er boðið í jólaboð hjá ókunnugum og skemmtir sér konunglega.
Katherine Jenkins syngur lagið Heaven Is a Place on Earth með Belindu Carlisle.
Að lokum uppgötvar sveinki heimili jólanna: verslun M&S, leyndarmál sem eiginkona hans hefur lengi vitað, enda verslað hjá M&S í mörg ár. Hún er kona á vissum aldri sem kann að meta góða hluti þegar hún sér þá.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗